Skinfaxi - 01.11.1954, Side 24
120
SKINFAXI
vangar, veitingastaðir, skrautgarðar og skrauthýsi,
barnaleikvellir, skólar og söí'n.
Það vill svo til, að um leið og við ökum yfir brúna,
er stórt hafskip að sigla undir hana. Þá verður xnér
ljóst, lxve hún er afar liátt vfir vatnsfletinum. Af henni
er hin lxezta útsýn yfir San Fransisco-flóann, og inn
til borganna miklu á norð-austurströnd lians. En
fjarst við sjóndeildarhring i-ísa há fjöll, eins og öfl-
ugur skjólgarður umhverfis flóann. Það má heita, að
þrjár mestu borgirnar handan við flóann, séu alveg
samvaxnar, Beikeley, háskólaborgin fræga, þar sem
inargir íslendingar hafa dvalið við nám, Oakland,
mikil hafnarborg, og Alameda. Milli Oakland og San
Fransisco, þvert yfir flóann, liggur lengsta brú heims-
ins, og blasir hún nú við augum, þegar ekið er yfir
Gullna hliðs-brúna.
Næsli hær handan við Gullna hliðið reynist að vera
fátæklegt smáþorp utan i snarbrattri fjallshlíð. Hér
stig ég út úr bílnum, því að hann hefur áætlun lengra,
en ætlun mín var aldrei önnur en sú að fara yfir
brúna og til baka aftur. Bíllinn fer til haka eftir
klukkustund. Þegar ég lief gengið um þorpið um
stund og komizt að raun um, að bókstaflega ekkert
er að sjá, ákveð ég að nota biðtímann til þess að fá
mér að borða. En slíkt reynist ógjörningur, þvi að
enginn veitingastaður er í þorpinu. Ég geng þá upp
i hlíðina fyrir ofan þorpið, vel mér góðan stað og sezt
þar niður.
I huga mér rifjast upp sögur og lýsingar, sem ég hef
fyrir löngu lesið. Hér gerðust sögur Jack London, sem
ég varð snemma hugfanginn af. Martin Eden háði
sína baráttu á þessum slóðum. Oakland og San Frans-
isco. — Hversu oft hafði ég ekki gert mér þetta um-
hverfi i hugarlund? Hversu oft liafði ég ekki óskað
þess, að fyrir mér ætti einhvern tíma að liggja að
koma hér?