Skinfaxi - 01.11.1954, Síða 51
SKINFAXI
147
3. Að herðakamburinn sé hár og skarpur, hryggurinn vel
vöðvaður og hafi mjúka sveigju, lendin sé einnig vel vöðv-
uð og jöfn (þ. e. mjókki ekki mikið aftur).
4. Að liðir séu réttir og sverir, en leggir grannir að fram-
an frá séð en breiðir frá hlið séð.
5. Að liófar séu heilir, liornið slétt, hófbotninn íhvolfur og
hóftungan þroslcamikil.
6. Að svipur hestsins og framkoma bendi til kjarks, hræðslu-
leysis og hrekkjaleysis.
7. Að hreyfingar séu þróttmiklar, fótlyfting góð, bolhreyfing
mjúk og liðug og hesturinn geti sýnt gangskiptingu.
2. Fóðrun og hirðing.
Folald er bezt alið þegar það fær að ganga með móður
sinni og fóðrast með henni fram á annað sumar. Séu folöld
hins vegar vanin undan, er bezt að fóðra þau á töðu eða
góðu útheyi við opið hús. Fái þau að ganga á lúni framan af
vetri er óþarft að taka þau á gjöf fyrr en eftir nýjár, þar
sem snjólétt er. Með beit eða heygjöf er mjög gott að gefa
þeim daglega 0.4—0.6 kg af venjulegri kúafóðurblöndu. í nóv-
embermánuði á alltaf að ormahreinsa folöldin.
Með hæfilegri og rólegri umgengni þarf að gera folöldin
gæf og vön manninum á fyrsta vetri. Ekki er liins vegar vert
að venja þau á mjög mikið dekur. Við það geta þau orðið fröm
og frek og fremur til leiðinda. Það á að venja hross þannig,
að þau trcysti manninum, virði hann og hlýði honum.
Veturgamla trippið er bezt að hafa sem mest úti. Gefa má
því út fóðurleifar frá fjósi og fjárhúsum. Það er einnig árið-
andi að ormahreinsa veturgömlu trippin. Með beit og heyj-
um (þau þurfa ekki eins gott hey og folaldið), er gott að
gefa þeim um hálft kg af kúafóðurblöndu, lílct og folöldunum.
Trippið á öðrum vetri: Bezt er að hafa trippin úti eða við
opið hús, og í snjóléttum sveitum er óþarft að gefa þeim ann-
að en rekjur og leifar frá fjósi og fjárhúsi, unz þau eru tekin
til þjálfunar 1. febrúar.
1. vika. Sé trippið styggt og óvant manninum er bezt að
fara rólega að þvi fyrstu vikuna, gefa því reglulega kvölds og
morgna, ganga þá upp í básinn til þess, klappa því og kemba
því, aðallega á hálsi og bol, og fá það með gætni og liægð af
höfuðstyggð. Aðeins gefið heyfóður, 3 kg í mál (2 fyrstu dag-
ana þó aðeins 2 kg).
2. vika. í hvert skipti, sem gefið er, skal fara upp í básinn
og kemba trippinu, strjúka niður fætur og reyna að lyfta
1Ö*