Skinfaxi - 01.07.1956, Side 5
SKINFAXI
53
skóla árum saxrian. Æðri sem lægri, er ekki geta kom-
ið saman til þess að skemmta sér án þess að liafa vín
um hönd, ,eru kennararnir i þessum skóla, drykkju-
tízkan í samkvæmislifinu skólareglugerðin.
Frá samkvæmum manna, þar sem vínið flóir, berst
ofl aðeins daufur ómur út á strætin, lögreglan tekur
ekki neinar myndir, liprir þjónar bera jafnharðan
burt tómar flöskur, ljós slokkna ekki og allt er þokka-
legt og fágað fyrir næstu vinv,eizlu. Ég minnist danskr-
ár kvikmyndar um áfengisbölið: Ungur, glæsilegur
maður, sem kominn er í háa stöðu, þolir ekki sam-
kvæmisvenjurnar, bann venur komur sínar á verri
og verri knæpur og skemmtistaði. Loks er bann orð-
inn ósamboðinn einni v,erstu knæpunni, það sér, er
bann gengur sína hinztu göngu út í hriðina og liún
úthýsir bonum ekki, eins og þeir sem græddu á að
eyðileggja hann, en tekur að vísu líf hans fyrir gisl-
inguna.
Eftir hæfilega mörg „fylliri" um hclgar og síðar
einnig í miðri viku, kynnist lögreglan stundum prúða
unga manninum frá skemmtistöðunum, sem of lílið
er amast við, á sveitaskennntun, ef til vill, og þar
rífur liann fötin utan af sjálfum sér eða öðrum, slekk-
ur ljósin þar og fyrir ástvinum sínum og heimili, sct-
ur hlett á sjálfan sig og alla, sem á vegi Jians verða.
Það er háð í löndunum borgarastyrjöld — gegn
æskulýð þjóðanna. Það græða of margir á því að grafa
undan siðferðisþreki og manndómi ungs fólks. Félag
heldur „fjáraflasamkomu“, en það er oft vegið að
samkomunni úr launsátri, fjandmenn æskulýðsins
hlaða vígi um staðinn og senda eitruð skeyti úr fjar-
lægð.
Stríðsundirhúningurinn getur farið fram á ólikleg-
um stöðum og verið framinn að nokkru af aðilum
sem sizt skyldi.
Ég sat til horðs með merkum manni einnar frænd-