Skinfaxi - 01.07.1956, Blaðsíða 23
SKINFAXI
71
A þinginu voru gerðar margar samþykktir. Tveggja
nýmæla ,er vert að geta. í fyrsta lagi að undirbúa
stofnun byggðasafns, og að söfnun örnefna verði
lokið sem allra fyrst í héraðinu. Einnig var í'ælt um
að vernda forna sögustaði í héraðinu, voru þar nefnd-
ir t. d. hinn forni þingstaður Kjalarnesþings, þar sem
sögur herma, að fyrst hafi verið efnt til þinglialds
hérlendis. Einnig var nefndur í þessu sambandi þing-
staðurinn í Kópavogi, þar sem hinn alræmdi Kópa-
vogsfundur var haldinn 1662.
Það er mikið verkefni ungmennafélaga um land allt
að varðveita forna sögustaði og örnefni.
Sambandið er að undirbúa utanferð i vor og hefur
komizt í samband við aðila í Danmörku um þau sam-
skijdi.
Axel Jónsson, er verið hefur formaður sambandsins
um skeið, baðst undan endurkosningu. Formaður var
kosinn Ármann Pétursson, Eyvindarholti, aðrir í stjórn
eru Gunnar Sigurðsson, Gestur Guðmundsson, Páll Ól-
afsson og Hjalti Sigurhjörnsson.
Að loknu þinghaldi fóru þingfulltrúar og gestir til
Bessastaða í hoði forsetahjónanna. Þar voru og 2
gamlir ungmennafélagar, þeir Þórhallur Bjarnarson
og Guðbrandur Magnússon. Var dvalið þar í góðu yf-
irlæti í 2 klukkustundir.
A. I.