Skinfaxi - 01.07.1956, Blaðsíða 30
78
SKINF.4XI
gerðu keppendur allt til þess að keppnin gengi vel og greið-
lega.
Ég' ætla nú að lýsa liér frjálsíþróttakeppninni.
100 m hlaup.
Keppnin hófst á 100 m lilaupi, 21 keppandi. í undanrásum
voru (i riðlar. 1. riðilinn vann Ragnar Guðmundsson á 11,7
sek. 2. varð Brynjar Halldórsson á 12 sek. Garðar Jóhannesson
dutt um 20 m frá marki, hann var annars langfyrstur. 2. riðill:
I. Hörður Ingólfsson, 11,5 sek., 2. Trausti Ólafsson, 11,7 sek.
3. riðill: 1. Hörður Lárusson, 11,2 sek., 2. Ólafur Ingvarssnn,
II, 5 sek. 4. riðill: 1. Guttormur Þormar, 11,6 sek., 2. Jón
Blöndal, 11,8 sek. 5. riðill: 1. Ingólfur Jónsson, 11,4 sek., 2.
Karl Torfason, 11,7 sek., 6. riðill: 1. Sigurður Björnsson, 11,7
sek., 2. Björn Jóliannsson, 11,8 sek.
í undanrásunum hlupu 15 keppendur á 12 sek. eða betur.
Sjáanlegt var, «ð keppnin yrði mjög jöfn og liörð. Landsmóts-
inetið er 10,9 sek., það á Guðmundur Vilhjálmsson. Tveir, sem
hlupu á 11,7 sek., komust ekki í milliriðla. 1. milliriðil vann
Ingólfur Jónsson á 11,4 sek., 2. Ilagnar Guðmundsson, 11,7
sek. 2. milliriðill: 1. Guttormur Þormar, 11,5 sek., 2. Karl
Torfason, 11,6 sek., 3. milliriðill: 1. Hörður Ingólfsson, 11,4
sek., 2. Trausti Ólafsson, 11,6 sek. 4. milliriðill: 1. Hörður Lár-
usson, 11,4 sek., 2. Ólafur lngvarsson, 11,7 sek.
Alltaf harðnaði keppnin og lilaupararnir urðu að taka meira
á. Það mátti sjá, hverjir voru keppnisvanir, þeir hlupu ekki
hraðar en þörf gerðist, til að fá að halda áfram. Næst voru
2 riðlar í undanúrslitum, þar fékkst úr því skorið, hverjir 4
fengju að keppa til úrslita. 1. riðill: 1. Hörður Lárusson, 11,4
sek., 2. Hörður Ingólfsson, 11,5 sek. 2. riðill: 1. Guttormur
Þormar, 11,5 sek., 2. Ólafur Ingvarsson, 11,6 sek. Þessir 4
áttu þá að keppa til úrslita. Það var töluvert afrek að kom-
ast í fjögurra manna úrslit i þessari hörðu keppni. Þarna var
meðal annarra Guttormur þormar, Cr livað frægastur er allra
þeirra, er kepptu á landsmótinu. Hann hefur verið í fremstu
röð íþróttamanna á landsmótunum frá 1943.
Úrslitasprettsins var beðið með eftirvæntingu. Hlaupar-
arnir voru eitthvað órólegir, og tókst ekki að koma þeim af
stað í fyrstu tilraun. Aftur ríður skotið af, og hlaupararnir
geysast fram, Guttormur nær beztu viðbragði og liefur foryst-
una, það leit úr fyrir að liann mundi enn einu sinni sigra 100
m hlaupið. Hörður Lárusson var ekki á því, hann lengir skref-