Skinfaxi - 01.07.1956, Síða 32
80
SKINFAXI
varpi, hann varð fyrstur til að kasta yfir 15 m, annar en Gunn-
ar Húseby. í annarri umferð tók Gestur forystuna, kastaði
14,13 m. Þá var Jónatan Sveinsson í 3. sæti, með 12,82 m, Sig-
fús Sigurðsson í 4. sæti með 12,6G m. í þriðju umferð breytt-
ist röðin ekki, en i 3. sæti kom Ólafur Þórðarson, með 13,12 m,
í 4. sæti Reynir Hálfdanarson með 12,91 m. í fjórðu umferð
er röðin sú sama. í fimmtu umferð eykst eftirvæntingin. Ágúst
nær forystunni með 14,13 m kasti, aðeins 1 cm skildi þá
Ágúst og Gest að. í sjöttu umferð nær Ólafur 13,22 m, en
Ágúst og Gestur lengja ekki köst sin og þessu sannkallaða
centimetrastriði er lokið. Á Eiðum kastaði Gestur 14,33 m,
Ágúst 14,29 m, svo að þeir Irafa fyrr átt í harðri keppni. Von-
andi sjást þeir oftar með kúluna á landsmótum, Ágúst og
Gestur.
Kringlukast.
í kringlukasti voru 14 keppendur. Landsmótsmet er 44,64
m. Það á Hallgrímur Jónsson. 10 keppendur köstuðu yfir 35
m. Aðeins einn kaslaði yfir 40 m. Má þvi segja, að árangur-
inn i kringlukastinu hafi verið heldur lakari en ætla mætti
af svo góðum kösturum, sem þarna voru saman komnir.
Gestur Guðmundsson tók strax forystuna með 37,28 m. Sig-
fús Sigurðsson er í öðru sæti, með 36,14 m. í annarri umferð
kastar Gestur 38,13 m, Ólafur Þórðarson nær 2. sæti, með
36,22 m og Sveinn Sveinsson 3. sæti, með 36,16 m. Keppnin
var mjög hörð og ekki gott að spá, livcr sigra mundi. í
þriðju umferð nær Jón Ólafsson 2. sæti, með 36,78 m kasti. Jón
sigraði á Laugum 1946, kustaði þá yfir 43 ni. í fjórðu um-
ferð náði Gestur 40,74 m kasti. Sveinn kemst í 2. sæti ineð
37,28 m. Sigurkarl Magnússon, hinn fjölliæfi íþróttamaður af
Ströndum, nær 4. sæti, kastaði 36,27 m. f fimmtu umferð nær
Ólafur 4. sæti aftur, kastar nú 36,60 m. 1 sjöttu uinferð er
það aðeins Sveinn, sem bætir sinn árangur, hann kastaði
37,45 m. Þar með var kringlukastinu iokið, Gestur var jiar
öruggur sigurvegari. Gestur er ákaflega snöggur kastari, liefur
mjög gott útkast, en skortir tækni í hringnum. Sveinn er
mjög öruggur. Hann átti jöfnust köst í keppninni, og liann
gerði ekkert kast ógilt.
Á Eiðum köstuðu 4 yfir 40 m. Þar er landsmótsmetið sett.
Spjótkast.
í spjótkasti kepptu 11 keppendur, jiar af köstuðu 9 yfir 40
m, 6 yfir 45 m. Ingvi Br. Jakobsson sigraði, kastaði 54,45 m,