Skinfaxi - 01.07.1956, Page 33
SKINFAXI
81
sem cr nýtt landsmótsmet og mjög góður árangur. Eldra met-
ið var 54,00 m, setl í Hveragerði 1919 -af Hjálmari Torfasyni.
Annar varð Sigurkarl Magnússon, kastaði 52,92 m. l>eir Ingvi
og Sigurkarl eru öruggir kastarar. Fleiri náðu ekki 50 m. Á
Eiðum sigraði Jón Bjarnason, kastaði 54,04 m. Þrír aðrir
köstuðu þar yfir 51 m.
Stökkin.
í langstökki voru 20 keppendur, þar af stukku 4 yfir 6 m.
7 stukku yfir 5,80 m. Iíeppendur gerðu mjög mörg stökk
ógild. Var eins og þeim gengi erfiðlega að finna út rétta at-
rennu, sem þó er fyrsta skilyrði fyrir langstökkvura.
í 1. umferð náði Vilhjálmur Einarsson 6,32 m, Hörður Ing-
ólfsson og Hörður Lárusson 5,91 m. í 2. umferð náði Guð-
laugur Einarsson 6,02 m. í 3. umferð liélzt röðin óbreytt á
4 fyrstu. í 4. umferð náði Kristófer Jónasson 6,20 m. og
Hörður Lárusson 5,98. í 5. umferð stökk Hörður Lárusson
6,02 m, og í síðustu umferðinni náði Vilhjálmur að stökkva
6,50 m. Ég tel, að Hörður Lárusson hefði heldur átt að keppa
í 400 m hlaupinu, það
hefði verið gaman að sjá
hann hlaupa þá vegalengd.
Hann er áreiðanlega mjög
sterkur 400 m lilaupari.
Vilhjálmur er mjög góð-
ur stökkvari. Hann er
sprcttharður og hefur mjög
góða atrennu og nær oft
góðu uppstökki. Mér virt-
ist sem margir stökkvar-
arnir þyldu ekki hina liörðu
atrennubraut, og þeir urðu
urðu of stífir i atrennunni,
og náðu því ekki góðum
uppstökkum. Það gátu all-
ir keppendur vitað, að
keppnin færi fram á hörð-
um velli, og þvi var nauð-
synlegt að æfa á harðri
braut ef þess var nokkur
kostur. Það var ekki nauð-
synlegt að stökkgryfja væri
við hina hörðu æfinga-
6
Brynjar Jensson.