Skinfaxi - 01.07.1956, Qupperneq 34
82
SKINFAXI
braut, aðaláherzluna þurfti að leggja á að æfa atrennuna á harðri
braut. Þetta þurfa keppendur ávallt að taka til athugunar.
Það er mikill munur fyrir þá, sem æfa að staðaldri á grasi,
að eiga að keppa á hörðum malarvelli.
Landsmótsmetið er 6,89 m. Það á Tómas Lárusson, setl á
Eiðum. Fjórir stukku þar yfir 6,38 m.
Þrístökk.
1 þristökki hættu margir skráðir keppendur við þátttöku,
hefur sennilega þótt völlurinn harður, og víst er þrístökk
ávallt varasamt á liarðri braut.
Landsliðsmaðurinn Vilhjálmur Einarsson sigraði með mik-1-
um yfirburðum, náði sama árangri og landsmótsmet hans frá
Eiðum er, hann stökk 14,41 m. Tveir aðrir stukku yfir 13 m.
Hástökk.
Hástökkið sigraði landsmótsmetliafinn Jón Ólafsson og nú
á nýju meti. Stökk hann 1,80 m. Gamla metið var 1,75 m. Jón
hefur sigrað tvisvar á landsmótinu áður. Fjórir keppendur
stukku yfir 1,70 m, Ingólfur Bárðarson og Jón Pétursson I
fyrstu tilraun, Jón ólafsson og Vilhjálmur Einarsson í ann-
arri tilraun. Yfir 1,75 m stukku Jónarnir i fyrstu tilraun, Ing-
ólfur í 3. tilraun, Vilhjálmur felldi hins vegar.
Yfir 1,80 m fór Jón ólafsson í annarri tilraun, en nafni
hans felldi í þeirri hæð. Árangurinn í liástökkinu var mjög
góður.
Stangarstökk.
Landsmótsmetið 3,61 m setti Kolbeinn Kristinsson á Eiðum
1952. Nú var keppnin mjög hörð, 4 stukku sömu liæð, 3,25 m,
og tveir aðrir 3,15 m. Brynjar sigraði. Hann er kornungur og
mjög efnilegur stangarstökkvari. Annar varð Ásgeir Guð-
mundsson og þriðji Jóhannes Sigmundsson. Þeir eru báðir
vel þekktir stökkvarar. Fjórði varð Ingólfur Bárðarson, mjög
efnilegur stökkvari. Á Eiðum stukku þeir Ásgeir og Jóliann-
es einnig jafnt, þá 3,32 m. Þá var Jóhannes í 2. sæti og Ásgeir
i 3. sæti, það má því segj-a, að þeir skilji jafnir eftir þessi
tvö mót.
Hlaupin.
Ég liafði ekki ástæður til að fylgjast með keppninni i 1500
m lilaupinu eða viðavangslilaupinu, en keppnin mun liafa