Skinfaxi - 01.07.1956, Síða 35
SKINFAXl
83
verið jöfn og hörð þar sem annars staðar. Víðavangshlaupið
sigraði hinn ungi, efnilegi Haukur Engilbertsson úr Borgar-
firðinum. Stefán Árnason Eyfirðingur varð annar.
1500 m hlaupið vann Stefán á 4 mín. 15,8 sek. Annar varð
Hafsteinn Sveinsson frá Selfossi á 4 mín. 17,8 sek. Fjórir hlupu
undir 4 mín., og því allir undir gildandi landsmótsmeti, sem
var 4 mín. 25,3 sek., sett á Eiðum af Guðjóni Jónssyni. Þau
voru ekki fá metin, er voru bœtt á mótinu. Þá er eftir það
hlaupið, sem flest metin voru sett í, 5000 m hlaupið, sein tví-
mælalaust var skemmtilegasta keppni mótsins og um leið ein-
hver skemmtilegasta 5000 m hl-aups keppni, sem fram hefur
farið hérlendis. Þar tóku forystuna strax tveir kornungir
Iiíauparar, þeir Haukur og Kristleifur Guðbjörnsson, fast á
eftir þeim kom svo Stefán Árnason. Þannig lilupu þeir hring
eftir Jiring, ungu hloupararnir, skiptust á um að leiða hlaupið,
en Stefán fylgdi fast á eftir, vildi auðsjáanlega ekki sleppa þeim
langt á undan. Sýndi hann, að liann kann að beita sér eftir því
er við á. Ungu mennirnir munu hafa eitt orku í að keppast
mn forystuna fram yfir það, sem Stefán eyddi.
En þeir eiga heiður skilið fyrir þá skemmtilegu keppni, er
]ieir hleyptu í hlaupið. Smám saman dró æ meir í sundur með
þessum 3 og hinum hlaupurunum, sem þoldu ekki þennan
mikla liraða, sem var í hlaupinu. Þó fór svo, að Stefán hleyp-
ur fram úr Hauk og Kristleifi, Haukur heldur í við liann, en
Kristlifur gefur heldur eftir. Þeir Stefán og Haukur háðu
svo mjög harða baráttu um fyrsta sætið. Sigraði Stefán þar
á 15 mín. 47 sek. Haukur liljóp á 15 mín. 49,4 sek. Þetta er
mjög góður árangur. Árangur Hauks var nýtt unglingamet og
nýtl drengjamet. Kristleifur varð 3. á 10 mín. 0,8 sek. Einnig
belra en gildandi drengjamet. Eftir þetta 5000 m lilaup
þurftum við ekki að kvíða því, að við eigum ekki upprennandi
langhlaupara, en þar hefur stundum virzt eins og um nokk-
urs konar eyðu væri að ræða hjá íþróttamönnum okkar. Von-
andi halda þessir hlauparar áfram að stunda þollilaupin, og
vonandi verður þessi glæsilegi árangur þeirra til að hvetja
enn fleiri unga menn til að leggja stund á þessa iþróttagrein,
sem er svo sérstaklega gott að æfa í sveitinni. í 13 greinum,
sem keppt var í fyrir karla, voru sett ný landsmótsmet og
það 7. var jafnað. Þetta er glæsilegur árangur.
Kvennakeppnin.
í 80 m hlaupi tóku þátt 12 stúlluir. Hlaupið var i 3 riðlum
og 2 fyrstu komust í milliriðla. 1. riðil vann Salvör Hannes-