Skinfaxi - 01.07.1956, Qupperneq 36
84
SKINFAXI
dóttir á 11,3 sek, 2. varð Margrét Hallgrimsdóttir, 11,5 sek. 2.
riðill: 1. Hildur Björnsdóttir, 11,3 sek., 2. Sigrún Andrésdóttir,
11,6 sek. 3. riðill: 1. Margrét Árnadóttir, 10,9 sek., 2. Guð-
björg Lárentíusdóttir, 11,2 sek. Eins og sést af Jjessu, vöru
stúlkurnar ínjög jafnar og keppnin því mjög hörð. Fyrri milli-
jriðillinn vann Margrét Árnadóttir á 11,0 sek., 2. Margrét Hall-
gr., 11,4 sek. Seinni milliriðilinn vann Salvör Hannesdóttir,
11,1, 2. varð Hildur Björnsdóttir, 11,3. Margrét Árnadóttir vann
svo úrslitasprettinn á 10,9 sek., Salvör 2., Hildur 3. og Margrét
Hallgrimsdóttir 4. Hún sigraði á Eiðum á 10,4 sek., og þ-að er
landsmótsmetið. Nú var Margrét auðsjáanlega ekki i æfingu.
Þrjár þær fyrstu voru mjög öruggar og vel æfðar.
4X80 m boðhlaup.
Fjórar sveitir tóku þátt í boðhlaupinu, ein þeirr-a, sveit
IJMSK, var dæmd úr leik fyrir ranga skiptingu. Sveit Skarp-
héðins sigraði með miklum yfirburðum, á 45,0 sk., sama tíma
og landsmótsmetið er, en það var sett á Eiðum af sveit HSI5.
Hástökk.
í hástökkinu stukku 3 fyrstu sönm hæð. Sigurvegarinn, Guð-
rún Sigurðardóttir, stökk yfir allar stökkhæðirnar í fyrstu
tilraun, hún var mjög öruggur hástökkvari. Lovisa Sigurðar-
dóttir varð 2. Hún felldi einu sinni 1,15 m, 1,20 m, og 1,25
m. Þriðja varð Inga Valtýsdóttir, hún felldi 1,25 m tvisvar.
Landsmótsmetið, 1,31 m, er sett á Eiðuru af Nínu Sveinsdóttur.
Þar stukku tvær þá liæð, og fjórar yfir 1,28 m.
Kúluvarp.
í kúluvarpinu var notuð drengjakúla, stafaði það af því, að
vegna mistaka hafði hún verið send i stað kvennakúlu..
Ragna Linberg sigraði kúluvarpið ineð yfirburðum, var
tæpum metra á undan þeirri næstu. Um árangurinn er ekki
gott að dæma, þar sem ekki var notuð kúla af réttri þyngd.
Landsmótsmetið er 9,82 m, sett á Eiðum af Gurúnu Krist-
jánsdóttur.
Langstökk.
Keppnin i langstökkinu var mjög jöfn og skemmtileg. Þar
stukku fimm yfir 4 m. Eftir 3 umferðir var Hildur Björnsdótt-
ir fyrst með 4,30 m stökk, Ingibjörg Sveinsdóttir önnur með
4,20 m, Margrét Árnadóttir þriðja með 4,14 m, Margrét Hall-
grímsdóttir fjórða með 4,11 m. í 4. umferð nær Inga Valtýs-