Skinfaxi - 01.07.1956, Qupperneq 40
88
SKINFAXI
liann er unninn. Dreifðu honum ekki lön}>u áður en stungið
er upp, því að þá tapast áburðarefni (köfnunarefni).
Dreifðu áburðinum vel og jafnt yfir garðinn og gætlu þess,
að hann falli vel ofan í moldina við uppstungu.
í tilbúnum áburði myndast oft kögglar, og þarf að mylja
þá vel og vandlega, og dreifa sem jafnast, svo að hver jurt fái
sitt, að öðrum lcosti geta sumar fengið meira en þær jiola. Berið
tilbúinn áburð á í þurru veðri og lygnu, annað hvort áður en
stungið er upp, eða eftir að þvi verki er lokið, en áður en
rakað er yfir moldina. Aukaáburðarskammt yfir vetrartimann
er bezt að bera á rétt fyrir úrkomu, svo að hún geti skolað nær-
ingarefninu niður að rótunum.
Garðáhöld.
Þú þarft ekki mörg áhöld til þess að vinna með í garðinum,
þessi eru þau helztu: reka, gaffall til þess að stinga garðinn
upp með, ef liann er ekki plægður, hrífa til að hreinsa og
slétta með og raka yfir útsæði og fræ, arfaskafa til þess að
hreinsa illgresi og losa upp moldina í beðum, snúra til þess
að merkja raðir eftir, metramál til þess að mæla með millibil
raða og plantna, lítill spaði til þess að grafa með holur, þegar
plantað er út, og lítill hnífur til þess að losa plöntur með úr
plöntukassanum.
Garðræktunin undirbúin.
Plægðu eða stingdu upp garðinn strax og hann er hæfilega
þurr. Ef moldin loðir mjög mikið við rekuna eða gaffalinn er
garðurinn of blautur, en of þurr ef moldin springur í hörð
stykki. Taktu inold i höndina og kreistu hana, ef liún verður
eins og deig, er hún of blaut, en ef liún molnar, er hún hæfileg.
Strax og garðurinn hefur verið plægður eða stunginn upp
á að herfa liann eða mylja moldarkekkina sundur með garð-
hrífu. Bezt er að moldin sé vel nmlin sundur og þétt, sér-
staklcga fyrir fræsáningu.
Tegundir grænmetis og sáningartími. 1. Kartafla .... milli raða 50 sm. milli plantna 25 sm.
2. Gulrófa .. —- — 25 — — — 25 —
3. Grænkál .. .. _ _ 50 — — — 25 —
4. Blómkál .. .. — — 50 — — — 30 —
5. Hvitkál .... .. _ _ 50 — — — 50 —
6. Gulrætur .. .. — —20-25 — — __ 3_5 _