Skinfaxi - 01.07.1956, Síða 42
90
SKINFAXI
,íert í apríl eöa um mánaðamót apríl og mai. Einnig er hægt
að sá inni í kassa t. d. í björtum kjallara. Veldu góða garð-
mold og siktaðu hana ef liægt er.
Sáðu ekki of þétt. Sé sáð í kassa eru 300 til 400 korn hæfi-
legt magn. Þektu síðan fræið með fíngerðum sandi. Vökvaðu
síðan, en ekki of mikið. Hitastigið ætti að vera 10—12° um
spírunartímann. Hafðu góða birtu og loftgott á jurtunum, þeg-
ar þær eru komnar upp. Mjög rakt loft getur valdið rotnun.
Hiti meðan á uppeldi stendur er góður 8—10° á Celcius.
Jurtirnar verða þroskameiri en ella, ef þær eru teknar upp
og gróðursettar aftur gisnara i reitinn eða kassa. Þetta er gert
þegar fyrstu blöðin eru sjáanleg milli kímblaðanna. Bilið milli
jurtanna er haft 5—7 cm. Notaðu gamla garðmold.
Nokkrum dögum áður en jurtunum er plantað út í garðinn
á að herða þær, það er venja þær við útiloftiö með því að
lofta meir og meir um þær og að lokum taka gluggana alveg
af reitnum 2—3 siðustu sólarhringana. Kassar, sem hafðir eru
inni, eru fluttir út á daginn.
Bækur um garðrækt.
Nokkuð mikið hefur verið skrifað um garðrækt og er gott
fyrir þig að afla þér upplýsinga í þeim skrifum. Þér skal
bent á sérlega fróðlega bók um garðrækt, en það er Matjurta-
bókin, sem Garðyrkjufélag íslands gaf út árið 1949.