Skinfaxi - 01.04.1965, Síða 21
Skúli Skarphéðinsson og ég, og við héld-
um áfram hnífjatmr þar til um 40 m. voru
eftir í mark. Þá gaf sig eitthvað hjá Skúla
og mér tókst að sigra og setja Landsmóts-
og Skarphéðinsmet: 54,0 sek. Skarphéðins-
metið stendur enn eftir 13 ár. Þetta er
erfiðasta og minnisstæðasta keppni, sem ég
hef tekið þátt í á mínum íþróttaárum.
Seinasta grein mín á þessu móti var
langstökk. í því voru 33 keppendur. Þetta
var skemmtileg keppni, og heppnin virtist
ætla að elta mig. Eftir þrjár umferðir í
undankeppninni vorum við tveir jafnir í
6.—7. sæti með 6,20 m., en 6 menn áttu
að komast í úrslitakeppnina. Þá voru næst-
beztu stökk okkar látin skera úr, og kom
þá í Ijós að ég átti 6,16 m. en hann 6,15
m., og á þessum sentimetra flaut ég í úr-
slitin. skemmtilegt atvtk 1 fimtntu umterð
stökk ég svo 6,44 m. og náði þar með
þriðja sæti i þessari grein og fékk fyrir
það 2 stig. Hafði ég þá samtals fengið 8Vl
stig, sem dugði mér til þess að verða stig-
hæsti maður mótsins 1 frjálsum íþróttum.
Að lokum vil ég svo segja þetta Ég vil
þakka öllum þessum gömlu félögum tyrir
þann félagsanda. sem var sérstaklega ríkj-
andi á þessu móti og í þessari ferð. og
ekki sízt hinum síunga fararstjóra okkar,
Þóri Þorgeirssyni. sem hélt Skarphéðins-
liðinu sem einni heild á hverju sem gekk.
Með íþróttakveðju.
Magnúí Gunnlaugsson.
»1
Magnús Gunnlaugsson í hópi bræðra sinna frá Miðfelli í Hrunamannahreppi, sem
allir voru góðkunnir íþróttamenn. Frá vinstri: Emil, Kari, Magnús, Sigurður og Skúli.
SKINFAXI