Skinfaxi - 01.04.1965, Page 22
Þrastalundur endurreistur
Það hefur lengi verið óskadraumur ung-
mennafélaga og stefnumark að nýta betur
hina dýrmætu eign sína, Þrastaskóg, og
vinqa að því að sem flestir mættu njóta
hinnar óvenjulegu náttúrufegurðar þar. Nú
hefur forysta UMFÍ stigið mikilvægt skref
í þá átt að gera þennan stað að þeirri mið-
itöð ungmennafélaga sem hann verðskuldar.
Það er í þann veginn verið að ljúka við að
smíða veitingaskála á grunni hins gamla
Þrastalundar,. og tekur hann til starfa um
það leyti sem þetta hefti Skinfaxa kemur
út.
Eins og ungmennafélögum er kunnugt
var það stórhuginn og framkvæmdamaður-
inn Tryggvi Gunnarsson, sem gaf ung-
mennafélögunum Þrastaskóg árið 1911,
vegna þess að hann'bar traust til samtak-
anna og virti sérstaklega skógræktaráhuga
þeirra. Síðan hefur stöðugt verið unnið að
skógræktinni á þessum friðaða stað, og það
vita færri en skyldi, að skógræktinni hefur
miðað þar mjög vel áfram, og þarna er nú
eitt fegursta skógarsvæði á landinu.
Fyrir heimsstyrjöldina síðari starfrækti
Elín Egilsdóttir veitingakona myndarlegan
veitingaskála í Þrastalundi, en skálinn
brann árið 1941 og var hann þá setinn af
hernámsliðinu. Síðan hafa rústir Þrasta-
lundar blasað við vegfarendum um þjóð-
veginn í Grímsnesi þar til nú, að risinn
er nýr skáli á grunni þess gamla.
UMFÍ hefur lengi haft á döfinni að
hefja einhverskonar veitingarekstur í
Þrastaskógi í því skyni að hann komi að
meiri notum fyrir ungmennafélögin en
undanfarið, og til að laða þangað ferðafólk.
Það varð að ráði að byrja á því að reisa
þar skála fyrir kaffiveitingar, sölu á brauði,
pylsum og þessháttar, sem ferðafólk sækist
jafnan eftir.
Skúli H. Norðdahl arkitekt teiknaði þenn-
an skála, en feðgarnir Þórður Jónsson og
Jón Þórðarson hafa smíðað skálann. Þetta
er timburskáli af nýtízkulegri gerð, stendur
á steyptum grunni. Grunnflötur skálans er
um 100 fermetrar. Veitingasalurinn rúmar
um 40 manns við veitingaborð. Suðurhlið
skálans er að mestu úr gleri, þannig að í
honum er sólríkt og bjart, og einnig verð-
Tryggvi Gunnarsson.
22
SKINFAXI