Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1965, Page 32

Skinfaxi - 01.04.1965, Page 32
 ESSFSKÁK Þorsteinn Skúlason: Fal! er fararheill Þegar þetta er ritað, er lokið tveim ein- vigum af þeim sjö, sem heyja þarf, til þess að skera úr um það, hver hinna 8 kandídata fái rétt til þess að skora heims- meistarann Tigran Petrosjan á hólm og freista þess að steypa honum af stóli. Spassky vann Keres með 6:4 og Geller vann Smyslov með 5 Vi: 2 V2 Geller hafði sem sé tryggt sér sigurinn þegar að lokn- um átta skákum. Hinir átta kandídatar voru, áður en þeir Keres og Smyslov heltust úr lestinni: Smys- lov Larsen, Spassky, Tal, Ifkov, Partisch, Keres og Geller. Aðeins þrír þessara meist- ara eru ekki frá Sovétríkjunum, þ.e.a.s. Larsen frá Danmörku, Ifkov frá Júgóslavíu og Portisch frá Ungverjalandi. Fjórir þeirra fyrst töldu urðu efstir og jafnir i millisvæðamótinu í Amsterdam á síðastliðnu sumri. Auk þeirra komu úr því móti þeir Portisch og Ifkov, þótt éigi væru þeir næstir sigurvegurunum. En þar varð Stein í 5 sæti og Bronstein í 6. sæti, báðir frá Sovétríkjunum. Þetta á rót sína að rekja til þess, að reglur Alþjóðaskák- sambandsins um millisvæðamótið mæla svo fyrir, að ekki geti fieiri en þrír menn frá sömu þjóð fengið rétt til þess að tefla á- fram í kandídatakeppninni, en sex efstu sætin í millisvæðamóti veita rétt til þátt- töku þar. Þannig urðu þeir Stein og Bron-' stein að bíta í það súra epli að láta staðar numið í kapphlaupinu um heimsmeistara- tignina, þar sem þrír Sovétmenn vor fyrir ofan þá í mótinu. Ifkov, sem varð í 7. sæti kom þannig í staðinn fyrir Stein, en þeir Portisch og Reshevsky frá Bandaríkj- unum, sem urðu jafnir í 8.—9. sæti, urðu að heygja einvígi um sætið, sem eftir var. Portisch vann þá keppni glæsilega, og mun það vera í fyrsta sinn, sem Reshavsky tapar einvígi. Keres varð í 2. sæti á síðasta kandídata- Spassky 32 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.