Skinfaxi - 01.09.1969, Qupperneq 9
Framiarírnar kalla á enn
aukið starí
Ingólfur Ingólfsson, formaður UMSK
var á frjálsíþróttaræfingu á grasvelli-
num í Kópavogi, þegar Skinfaxi náði
tali af honum. Þarna var formaðurinn
að æfa af fullum krafti með sínu fólki
og þarna var sannarlega líf og fjör, um
30 manns bæði stúlkur og piltar að
sefa hinar ýmsu greinar frjálsra
íþrótta. Ingólfur hefur lengi verið vel
liðtækur frjálsíþróttamaður, og hefur
starfað bæði í Umf Aftureldingu, verið
í stjórn Umf Breiðabliks í Kópavogi
og formaður frjálsíþróttardeildar þess.
— Er þetta nýr völlur, Ingólfur?
— Hann er nýr í því formi, sem
hann er nú. Brautin fyrir spretthlaup
var fullgerð nú í vor og nú er þeta að
verða góður æfingavöllur.11
Alda Helgadóttir
setti ísl.met
í spjótkasti
kvenna í sumar.
— Hvernig er aðstaðan annars með
velli og íþróttahús á sambandssvæði-
nu?
— Hún er ekki sem bezt, þótt mik-
ið hafi lagast undanfarið. Við höfum
leyst vandann að nokkru með því að fá
aðstöðu á Armannsvellinum í Reykja-
vík. Á Seltjarnarnesi er ágætt íþrótta-
hús risið, og þar höfðum við ýmsar
æfingar í vetur. I Kópavogi er nú verið
að byggja stórt íþróttahús, sem bætir
mjög aðstöðu hér í bænum.
— Er mikill íþróttaáhugi í þínu
héraði?
— Áhugi skapast alltaf þar sem
eitthvað er gert fyrir þá yngstu, og
við höfum lagt áherzlu á að efla æfing-
ar fyrir unglingana. Við x stjórninni og
framkvæmdarstjóri okkar höfum fax’ið
um sveitirnar, heimsótt félögin og
í’eynt að stuðla að æfingum. Þær eru
líka víðast hvar í góðu lagi.
— Eruð þið með allar íþróttagrei-
nar á dagskrá í UMSK?
— Já það eru æfðar allar Lands-
mótsgreinar íþrótta. Frjálsar íþróttir
hafa alltaf skipað eins konar heiðurs-
sæti hjá sambandinu. I þeim hafa æf-
inga verið stöðugastar gegnum árin.
Margir vinna þar vel, en í því sam-
bandi verð ég að minnast á nafn
Magnúsar Jakobssonar, formanns
frjálsíþróttadeildar Breiðabliks, sem
SKINFAXI
9