Skinfaxi - 01.09.1969, Side 22
Landgræðslustarf
ungmennafélaganna í sumar
Um 100 lestir af fræi og áburði í örfoka land .. .
Landgræðslustarfi ungmennafélaganna
í sumar, í samvinnu við Landgræðslu
ríkisins, lauk um miðjan júlí. Sáð var
um 7 lestum af grasfræi, melgresi og
höfrum í örfoka landsvæði og dreift
um 90 lestum af áburði bæði á ný upp-
ræktunarsvæði og einnig á þá staði,
sem í var sáð í fyrra.
Ný landgræðslusvæði, sem fræi og
áburði var dreift á í sumar, eru sam-
tals um 150 hektarar að stærð, en auk
þess var borið á 170 hektara, sem sáð
var í af ungmennafélögunum í fyrra.
Samtals var því borið á 320 hektara
svæði í ár. Rúmlega 400 ungmenna-
félagar tóku þátt í landgræðsluferð-
unum í sumar
Hér er um að ræða mikla aukningu
landgræðslustafsins miðað við síðast-
liðið ár. Þó hefði þetta sjálfboðaliðs-
starf ungmennafélaganna getað orðið
a.m.k. tvöfalt meira, ef fé hefði verið
fyrir hendi til kaupa á fræi og áburði-
Landgræðsla ríkisins hefur takmarkað
fé til kaupa á þessum hlutum, og
framboð ungmennafélaga til land-
græðslustarfsins er miklu meira en til-
varandi fjárveiting ríkisvaldsins til
efniskaupa.
Það er ánægjulegt að geta skýrt frá
því, að áhugi á landgræðslu er vaknað-
ur hjá þjóðinni almennt. Félagssamtök
af ýmsu tagi vinna landgræðslustörf i
vaxandi mæli. Sumar af landgræðslu-
ferðum ungmennafélaganna eru líka
farnar í samvinnu við gróðurverndar-
nefndir og búnaðarsamtök, enda sjálf-
sagt að taka höndum saman við alla,
er vilja vinna að þessu þjóðþrifamáli-
Miklar og góðar vonir eru bundnar við
hin nýju landssamtök áhugaaðila um
landgræðslu, sem nú er verið að undir-
búa.
I stuttu máli sagt voru landgræðslu-
ferðir á vegum ungmennafélaganna i
sumar sem hér segir:
22
SKINFAXI