Skinfaxi - 01.09.1969, Síða 39
Frá staríi ungmennafélaganna
Sambandsmót UMSK í frjálsum
íþróttum fór fram í Saltvík 28. júní.
40 þátttakendur tóku þátt í mótinu
frá 5 félögum. Árangur var góður í
mörgum greinum enda þótt völlurinn
væri þungur vegna langvarandi rign-
inga. Beztu afrekin í frjálsum íþróttum
voru: Þrístökk Karls Stefánssonar
14.12 m og kúluvarp Lárusar Lárus-
sonar 14.04 m, 100 m hl. Kristínar
Jónsdóttur 13.5 sek., spjótkast Arn-
dísar Björnsdóttur 33.74 m.
Breiðablik í Kópavogi átti sigurveg-
ara í öllum greinum nema í kúluvarpi
kvenna, þar sigraði Alda Helgadóttir
Stjömunni í Garðahreppi, fjölhæf
íþróttakona.
I handknattleik kvenna sigruðu
Islandsmeistarar Vals, UMSK með 7
mörkum gegn 3.
I knattspyrnu 3. fl. sigraði Grótta
Aftureldingu með 3 gegn 2.
Hátíðin var vel sótt og fór vel fram.
Mótstjóri var Ólafur Unnsteinsson.
Úrslit karla:
100 metra hlaup
sek.
1 Trausti Sveinbjörnsson, B .......... 11.6
2 Karl Stefánsson, B ................. 12.3
3 Erlingur Jónsson, B ................ 12.3
4 Helgi Sigurjónsson, B .............. 12.6
ÖRNEFNASÖFNUN
26. sambandsþing UMFÍ minnir á að örnefna-
söfnun hefur í marga áratugi verið eitt af við-
fangsefnum ungmennafélaganna. Þingið hvet-
ur öll ungmennafélög til að halda til haga
þeim söfnum, sem þegar eru til, og vera við-
búin að hefja samvinnu við Þjóðminjasafnið
ef það leitar til félaganna í sambandi við
þetta mál.
FÉLAGSMÁLAKENNSLA OG LEIÐBEINENDA
NÁMSKEIÐ
Þingið ályktar að góður árangur hafi náðst
með áfangamenníun leiðbeinenda sem sér-
sambönd og héraðssambönd hafa efnt til í
samvinnu við íþróttakennaraskóla íslands.
Þingið samþykkir því að hvetja sambands-
aðila til þess að kynna sér þessa starfsemi og
efna til slíkra námskeiða, sem nái til einstakl-
inga eins héraðs eða fleiri.
Þá vill þingið þakka þá nýjung, sem
menntamálaráðuneytið leyfði að gerð væri á
s. 1. hausti í héraðsskólanum í Reykholti, að
nemendum í 4. bekk væri leyft að nema
íþróttafræði sem valgrein. Um leið og þingið
þakkar skólastjóra héraðsskólans og kennur-
um þessarar deildar skólans störf að þessari
nýjung, vill það hvetja fleiri forráðamenn
héraðs- og gagnfræðaskóla til þess að taka
slika starfsemi inn á námsskrá skóla þeirra.
SKINFAXI
39