Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1942, Síða 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1942, Síða 5
Jónas Bjarnason. Erlendur Pálsson. Karel Ingvarsson. porsteinn Hjelm. Seltjarnarnesi, fæddur 24. jan. 1899, kvæntur og á 1 barn, 2 ára. Þorsteinn Hjelm, kyndari, fæddur 5. okt. 1918, einhleypur, á móður á lífi. B.v. „Jón Ólafsson“ var 425 br. smál. að stærð, byggður í Englandi 1933, en keyptur hingað til lands af H.f. Alliance 1939, kom hing- að í endaðan marz það ár og byrjaði strax veið- ar. Reyndist hann hið bezta skip, togaði vel, ganghraður og gott sjóskip. Mannaíbúðir voru með því bezta sem er á okkar skipum. Skip- stjóri var frá byrjun Guðmundur Markússon. „Jón Ólafsson“ var með aflahæstu skipum okk- ar. Á öðru stríðsári, 1940, voru úthaldsdagar skipsins 360 dagar. Fór hann 16 ísfisksöluferðir til Englands það ár og seldi fyrir samtals 90.917 stpd. Árið 1941 urðu frátök frá ísfiskveiðum, eins og kunnugt er, en þá stundaði skipið meðal annars saltfiskveiðar. Á þessu ári hafði skip- ið farið 12 ísfisksöluferðir til Englands og selt fyrir rúm 133.000 stpd. KVEÐJUORÐ Islenzka þjóðin hefir, síðan styrjöldin hófst, horft á eftir fjölda góðra drengja sinna í hafið, og enn er höggvið stórt skarð í sjómannahóp- inn með skipverjunum, er fórust á b.v. Jóni Ólafssyni. Við skiljum ei sköpin, en skynjum töpin. Við eigum bágt með að trúa svo beizkum staðreynd- um, er hópur manna á bezta aldursskeiði, er hafa lifað og hrærst á meðal vor, eru í einni svipan horfnir, og koma aldrei aftur. Við, sem störfuðum með þessum mönnum, vissum að þar, sem þeir voru, var valinn maður í hverju rúmi og að þeim hefir aðeins orðið að grandi, það sem mannlegum mætti er ofurefli að forðast. Nokkrir þeirra höfðu verið skipverjar mínir í fleiri ár, á þessu skipi og öðrum, en alla þekkti ég þá vel bæði í einkalífi og á starfstímum og get því öðrum betur um dæmt, að þeir voru hinir beztu mannkostamenn. Ég kveð þessa fé- laga og vini með djúpum söknuði, þakklæti og virðingu. Ég skil vel hve harmur ástvina þeirra hlýtur að vera sár, engin orð fá umbætt slíkan missir, en ég votta þeim mína innilegustu samúð í sorg þeirra. Guðmundur Markusson skipstjóri. V I KI N G U R 5

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.