Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1942, Qupperneq 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1942, Qupperneq 28
Hversdagsleg mynd írá íiskveiðum. Lunningin að mestu á kafi í sjó. upp á því, því að skipið var allt í kafi. Kl. 8 f. h. reið ógurlegur brotsjór yfir skipið, en svo heppilega vildi til, að skipið horfði beint upp í kvikuna. í þessu ólagi sópaðist allt ofan af skipinu, og platan í keisnum, sem bb.-fírpláss- ventill stendur á, bognaði niður að aftan, en sveigðist upp að framan, svo ventillinn hallaðist aftur, en ég vil geta þess, að platan var alveg ný. Um hádegi var heldur farið að draga úr veð- urofsanum og kl. 3 e. h. var farið að halda SSA, fyrst með þo ferð, en þegar leið á kvöldið var sett á fulla ferð. Hinn 15. mars var hæg S-átt með þoku og súld. Strax í birtingu var dekkið, þar sem það hafði brotnað, smurt með smjörlíki, og tókst okkur alveg að stöðva lekann. Hinn 16. marz kl. 7V& e. h. erum við hjá Barra Head, í ca. 4 sjóm. fjarlægð, en svarta þoka, svo landið sást ekki. Hinn 17. marz er hæg S-átt, en þoka. í dag komum við bb.-bátnum á réttan kjöl og á sinn stað, tókum stb.-bátinn inn, og lagfærðum það sem við gátum. Kl. 3 e. h. erum við hjá Point of Ayre, en svarta þoka, skyggni ca. j/; sjóm. Kl. 8'/o e. h. er lagzt við akkeri hjá Morcecombe Boy vitaskipi, því það var sjáanlegt að við kæmumst ekki í björtu til Fleetwood. Rétt. fyrir birtingu hinn 18. marz er akkeri létt og farið til Fleetwood, og vorum við komnir í dokku kl. 11 f. þ. Hinn 19. marz er landað, og var sára lítið skemmt af fiskinum eftir lekann, og álitum við það vel sloppið. Þ. P. urðsson skipstjóri fimmtugur Fimmtugur varð 14. þ. mán. einhver ágætasti sjómaður og skipstjóri hér norðanlands, Björn Sigurðsson, skipstjóri á m.b. Hrönn. Björn Sig Björn Sigurðsson. Björn er fæddur í Vík í Héðinsfirði, sonur merkishjónanna Sigurðar Guðmundssonar og Halldóru Björnsdóttur, er lengi bjuggu á Vatns- enda í Héðinsfirði. Ólst Björn þar upp við venjuleg sveitastörf pilta, en 10 ára gamall byrjaði hann róðra á árabát, og má svo heita að síðan hafi hann óslitið stundað sjó. Árið 1916 tekur hann við skipstjórn á m.b. „Christi- ane“, sem hann var með að mestu leyti til árs- ins 1927, en þá tekur Björn við skipstjórn á m.b. Hrönn, sem hann hefir haldið óslitið síðan. Björn er einn af farsælustu skipstjórum sem við eigum, greindur vel og gætinn, enda hvers manns hugljúfi. Honum hefir aldrei hlekkst á alla sína skipstjóratíð. Björn er kvæntur Eiríksínu Ásgrímsdóttur, hinni ágætustu konu, og eiga þau 10 mannvæn- leg börn. Þeir, sem ennþá muna þann tíma, áð- ur en „ástandið" kom til sögunnar til þess að hressa upp á fjárhaginn hjá íslenzkum sjó- mönnum, vita hvaða þrekvirki hefir þurft, til þess að ala upp og manna 10 börn, og komast óstuddur yfir öll þau erfiðleikaár sem skamm- sýnt, ríkisvald og aðrir hafa lagt á alla þá, sem nálægt sjó hafa komið. Siglufirði, 19. nóv. 1942. G. T. 28- V I K I N G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.