Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1942, Page 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1942, Page 30
4. /9. Bandaríkju-setuliðið til- kynnir, að fyrsta þýzka flugvclin, sein bandarískir orustu-flugmenn liafi skotið niður, hafi verið hœfð skammt frá Rvík i ágústmánuði. * 5. /9. Frumvarpið um raforku- sjóð afgreitt sem lög frá Alþingi. Er þar 10. millj. kr. framlag úr ríkissjóði cr greiðist af tekjum ríkissjóðs 1941 og 1942, og svo y2 millj. kr. framlag árlega. * Pýzk sprengjuflugvél varpaði niður 4 sprengjum í Seyðisfirði. Ekkert slvs varð á mönnuin eða tjón. * 7./9. V.b. Grete, er strandaði á Söndunum í marz þ. á., náðist út og kom inn til Rvíkur. Skipið er um 50 smál., eigandi Ólafur Ó- feigsson. * 9. /9. Samningar undiixitaðir milli sjómannafélaganna og Eim- skip uin kaup og kjör lijá far- skipum. * 10. /9. þýzk flugvél, er flaug yf- ir Austfirði, skaut af vélbyssum á tvö íslenzk íbúðarhús, en engin slys urðu að. Síðan flaug vélin til hafs og skaut á tvo íslenzka fiski- báta, en slys varð ekkert. * Mjólkurlíter kostar nú kr. 1.59 í Rvík, kg. af smjöri kr. 18.70, rjómi kr. 9.50 líter. Heildsöluverð á kartöflum er kr. 80.00 tunnan. * '20./10. Vísitala okt. cr 250 stig, eða liefir hœkkað um 40 stig frá sept, Aðallega eru það innlendu afurðirnar, cr hafa liaft áhrif í hœkkunar-átt. # þýzk sprengjuflugvél réðist að l.v. Eldborg fyrir Austurlandi, gerði 15 eða 10 atrennur að henni til þcss að varpa sprengju, en inistókst alltaf, þar sem skipverj- ar stýrðu skipinu alltaf í kráku- siga, sáu þeir þegar flugmennirn- ir opnuðu hlerana til þess að sleppa sprengju, en hœttu alltaf við. í síðustu atrennunni skutu fluginennirnir af vélbyssu frain- an í flugvélinni, en hittu ekki. ¥ 25./10. Alþingiskosningum, cr fram fóru 18. og 19. okt., lauk þannig, að Sjájfstæðisflokkurinn fékk alls 2?001 atlcv. og fær 20 þingmenn, Framsóknarflokkurinn 15808 atkv. og fær 15 þingmenn, Sósíalistaflokkurinn 11000 atkv. og fæi' 10 þingmenn og Alþýðu- flokkurinn 8406 atkv. og fær 7 þingmenn. Atkvæðamagnið bak við hvern þingmann, eftir að uppbótarþing- sætum hefir verið úthlutað, verð- ur þannig: Alþýðuflokks 1208,0 atkv., Sjálfstæðisflokks 1150.5, Sós- íalistaflokks 1106 og Framsóknar- flokks 1057.5 atkv. Við kosningarnar 5. júlí fengu flokkarnir atkvæði þannig: Sjálf- stæðisflokkurinn 22974 atkv., Framsóknarflokkurinn 16033 at- kv., Sósíalistaflokkurinn 9423 at- kv. og Alþýðuflokkurinn 8979 at- vkæði. * 30./10. Menntaskóli Akureyrar var á þessu hausti 15 ára, var af- ingelisins minnst hátíðlega. Skóla- stjóri rakti nokkuð sögu skólans. Htskrifaðir hafa verið alls 340 stúdentár, þar af 209 úr Norðlend- ingafjörðungi, 67 úr Vestfirðinga- fjórðungi. Flestir nemendur skólans hafa verið úr bændastétt eða 120, kaup- sýsiumannasynir 45, kennarasyn- ir 30, læknasynir 25, prestasynir 18, útgerðarmannasynir 13, lög- fræðingasynir 12, 3 verkamanna- synir, aðrir stúdentar úr ýmsum öðrum starfsstéttum. Af þessum stúdentum voru 27 konur. * 3./11. Samkvæmt verslunar- skýrslum, nýútkomnum, hefir verslunum á landinu fjölgað frá fyrstu árunum eftir aldamót úr 300 upp í 1152 árið 1940. * Fregn af Austfjörðum hei'mir, er á voru 3 mcnn, hafi farist, og talið fullvíst á tundurdufli, þar sem mikill sjóstrókur af spreng- ingu sást gjósa í loft upp, á þeim stað er báturinn var. Bátverjar voru Magnús Jónsson formaður, kvæntur, átti 5 börn. Jón Aust- mann Jónsson, bróðir Magnúsar, ókvæntur, og Lúðvík Sigurjóns- son, kvæntur og átti 4 böfn. ¥ 8./11. Verkamönnum lijá setu- liðinu liefir fækkað mjög upp á síðkastið, vinna hjá því nú um 1900 manns, en voru flestir um 8500. * 11./11. Um mánaðamót nam út- flutn. alls 181.5 millj. kr., en inn- flutn. alls 191 millj. kr., verzlun- arjöfnuður því óhagstæður um 9.5 millj. kr. Á saina tíma í fyrra var verzlunarjöfnuður hagstæður um 57 millj. kr. * 8-/8. ■— Breskur kafbátsforingi, Anthony Myers hefir verið sæmd- ur Viktoríukrossinum. Elti hann skipalest inn í höfn í Miðjarðar- liafi, beið þar inni þar t.il bjart var orðið, skammt frá ítölskum tundurspilli, og tókst að skjóta tvö 5000 smál. skip með tundur- skeytum. Og slapp svo út úr höfn- inni, en þá hafði hann dvalist þar í 17 klukkustundir. K afbátur þessi hcitir Torbay og hefir starf- að í Miðjarðarhafi. Hefir hann samtals sökkt 28 skipum samtals 70.000 smál. að stæi'ð. * 21./8. þjóðverjai' tilkynna að þeir hafi gert fyrstu árásina yfir Don í bugðunni. 500 manns kom- ust yfir, en voru stráfelldir, segja ltússar. Hættan eykst fyrir Stalin- grad. 30 VJKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.