Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1951, Side 11
Skonnortan „Elísabet", sem bjargaö var af söndunum eystra og um er getið á bls. 186. — Hér er búið að lyfta
skútunni upp úr sandhafinu.
dáun mína. Við gistum eina nótt í Feneyjum og
höfðum svo heilan dag til að skoða þessa töfr-
andi eyjaborg, sem oft er nefnd drottning Adría-
hafsins, enda var hún það um langt skeið. Frá
Feneyjum fórum við með 10000 tonna farþega-
og flutningaskipi frá Messe’s Lloyd Triestion,
sem kom við á öllum stærri höfnum Adríahafs-
ins á leið okkar, er tók heila viku „niður“ til
Piræus, hafnarborgar Aþenu. Við vorum á 1.
farrými og nutum alls hins bezta; var margt
farþega og dansað á hverju kvöldi. Var þetta
auðvitað undraheimur, sem ég kom svo snöggt
inn í eftir hinn harða og kalda vetur 1924. Þegar
við komum til Aþenu, þá kom það mér mjög
augljóslega fyrir sjónir, hve mikið Svitzerfélag-
ið var, því að við vorum að yfirtaka skip, sem
norskt björgunarfélag átti, en Svitzer átti þó
mest í. Síðan kynntist ég betur öllum þessum
fjárhagslegu staðsetningum Svitzersmanna, og
var það auðvitað nokkuð fyrir mig, íslenzkan
dreng, því í þá daga hafði maður hugsað aðal-
lega um vinnu, en minna um peningana. Er við
höfðum yfirtekið skipið, héldum við til Kon-
stantinópel, en komum við í Dardanellasundi,
þar sem við heilsuðum upp á umboðsmenn okk-
ar. Bjuggumst við svo fyrir í Konstantinópel,
þessari undraborg, sem Konstantín hinn mikli
gaf nafn eftir sér og blés slíkum lífsanda í, frá
því að borgin hét Bysantium og lifði aðeins á
fornri frægð. Væntanlegar skipsbjarganir okkar
voru í Svartahafinu, Marmarahafinu og Eyja-
hafinu. I Konstantínópel hittum við þrjú björg-
unarskip, sem við höfðum samvinnu við, skip
þessi voru í eign Ocean Salvagezcompany í
London. Þetta var þegar Mustafa Kemal pasha
var að ná yfirráðum í landinu, en Tyrkir hafa
ráðið borginni, eins og kunnugt er, frá árinu
1453. Var gaman að kynnast þessari fornfrægu
borg, sem bróðir sjálfs Grettis Ásmundarsonar
hafði gist. Getur maður ímyndað sér, hvílíkt
Grettistak stjórnarbreyting Mustafa Kemals
hefur verið, er náði alt frá viðkvæmustu málum
kvennabúranna, þar sem fjölkvæni var bannað,
og til þeirra umbrota á sviði stjórnarfonnsins,
að brjóta á bak aftur drottinvald soldánsins, er
ráðið hafði sem æðsti maður trúar og stjórn-
V í K I N □ U R
1E39