Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1957, Side 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1957, Side 24
Sölnsamband íslcnzkra fiskírainlclðcnda var stoínað 1 Júlímánuði 1932, með írjálsum samtökum íiskframleiðenda hér á landl. — Sambandið er stofn- að til þess að reyna að ná eðlilegu verði á útfluttan flsk landsmanna að svo miklu leyti, sem kaupgeta í neyzlulöndum leyfir. Sbrilstofa Sölnsambandsins er i Ilafnarhúsinu Simnefnl: Fisksölimefndin. Símar 1480 (7 línur). Búnaðarbanki íslands Austurstræti 5 — Reykjavík. Síml 81200 — Útibú á Akureyri. Banklnn er sjálfstæð stofnun undir sérstakri stjóm, og er eign ríkisins. * Trygging fyrir innstæðu er ábyrgð ríklsins, auk eigna bankans sjálfs. VB [R •VauuiféV'óezt Á „Já, við erum alveg öruggir", sagði skipstjórinn á strandferðaskipinu við lífhræddan farþega. „Ég hef siglt skipum á þessum slóðum í fjölda ára og þekki hvert blindsker og boða“. í þvi tók skipið niðri svo allt lék á reiðiskjálfi stafna á milli. „Þama“, sagði stýrimaður, „þetta var eitt þeirra". * * Drukkinn betri borgari ávarpar vegfaranda: „Hikk, fyrirgefið góði, segið mér, hikk, hvorum megin er hinum megin götunnar?" „Nú þama hinum megin“. „Hikk, ég var þar áðan, og þeir sögðu mér, að, hikk, það væri hérna megin, hikk“. * Þjóðareinkenni. Þegar Franzmaður drekkur vín, langar hann til að dansa; Þjóðverj- ann langar til að syngja; Spánverj- ann að spila fjárhættuspil; Englend- inginn að éta; ítalinn gortar; Rúss- inn verður ástúðlegur; írinn kemst í bardagahug; Ameríkananum lang- ar umfram allt að halda ræðu; ís- lendingurinn — deyr! * FRÍV2! Franski rithöfundurinn, Balzac, lá eitt sinn sem oftar andvaka í mmi sínu. Sér hann þá, hvar maður læð- ist hljóðlega inn í herbergið og reyn- ir að stinga upp læsinguna á skrif- borðinu hans. Enginn getur láð ves- lings þjófnum, þótt hann yrði dá- lítið skelkaður og ringlaður, er hann heyrði háværan hæðnishlátur íbúa herbergisins, sem hann hélt vera í fasta svefni. „Hvers vegna ertu að hlægja"' spurði hann. „Ég er að hlægja að því, kæri vinur“, svaraði Balzac, „hve litlar líkur eru til þess, að þú finnir nokk- uð fémætt í þessu skrifborði að nóttu, þegar heiðvirðum og löghlýðn- um eiganda þess tekst aldrei að finna neitt í því, jafnvel þótt hábjartur dagur sé. Þjófurinn hafði sig hið skjótasta á braut. * Dómarinn: „Lögregluþjónninn ber, að þér hafið verið dmkkinn og reynt að klífa upp í ljóskersstaur". Sökudólgur: „Já, sannai-lega, yðar velborinheit, sannarlega gerði ég það, en það höfðu nú verið þrír krókó- dílar á hælunum á mér næstum alla nóttina, og satt að segja voru þeir farnir að fara déskoti í taugamar á mér“. * Sá fulli: „Hikk, segðu mér, lög- regluþjónn, hvar er ég?“ Lögregluþjónn: „Þú ert á horni Laugavegs og Frakkastígs". Sá fulli: „Elskan mín, slepptu nú smáatriðum. f hvaða borg er ég?“ * Jón var ókominn heim síðla kvölds. Kona Jóns sendir þá eftirfarandi skeyti til fimm beztu vina Jóns: „Jón ókominn heim. Er áhyggjufull. Er hann hjá þér?“ Skömmu seinna kom eiginmaður- inn heim, heill á húfi. Áður en löng stund leið, bárust firnm svarskeyti, sem öll hljóðuðu á sama veg: „Já, Jón gistir hjá mér í nótt“. 224

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.