Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1957, Síða 40

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1957, Síða 40
mörk um Grænland eöa réttar- stööu íslendinga þar, er það eft- ir minni skoðun nauösynlegt, að ísland standi fast á sínum sögu- legu landsyfirráöum yfir Græn- landi. Þaö er mögulegt, aö viö samninga á þeim grundvelli gæti náöst samkomulag til gagns fyr- ir bæöi ríkin. En án fyrirvara um sinn sögulega eignarrétt til Grænlands má Island ekki byrja neina samninga viðkomandi Grænlandi því það myndi vera hægt aö skoöa slíkt sem sönnun fyrir því, aö ísland heföi gefiö Grænland upp og viöurkennt landsyfirráö Danmerkur yfir því“. (Hér eftir Grænl. á kross- götum, bls. 9—10). Ýmsir aðrir víðkunnir lög- fræðingar erlendis hafa látið það hiklaust í Ijós að Grænland hafi verið nýlenda íslands, svo sem t. d. dr. jur. Otto Opel prófessor í þýzkum rétti og sérfræðingur í germ. réttarsögu í Kiel, Ober- gerichtsrat dr. jur. H. Freiherr v. Jaden, próf. Valtýr GuÖmunds- son, er var ágætlega lærður í germ. réttarsögu, Joseph Torson, Thorsten Kalijarvi prófessor og háskóladeildarstjóri í U.S.A., og enn fleiri. Skoðanir próf. dr. jur. Georgs Erlers, forstöðumanns þjóöaréttarstofnunar háskólans í Góttingen, geta menn lesið af formála þeim, sem hann af eigin hvötum reit fyrir bæklingi mín- um: Die koloniale Stellung Grön- lands, Göttingen 1956, svo og af því, að hann lét nefnda þjóðrétt- arstofnun gefa þennan bækl- ing út. Allir lögfræöingar utan ís- lands e,ru sammála um þaö, aö lög fslands eins og þau voru á hverjum tíma og eins og viö þekkjum þau af Grágásarhand- ritunum frá miöri 13. öld haf i öll aö sjálfsögöu gilt á Grænlandi. Að mínu áliti færði Vilhjálmur Finsen fullnægjandi sönnun fyr- ir þessu (sjá rit mín: Réttar- stöðu Grænlands, nýlendu Is- lands, I. bls. 367—382, en eink- um „Die lcoloniale Stellung Grön- lands, bls. 29—)3, og „íslending- ar eiga Grænland, bls. 10—23). Jafnvel Knud Berlin sá sér ekki annað fært en að játa þessu. En eins og þjóöfélagi voru í tíö Grá- gásar (og Jónsbókar) og öllum forngermöns/cum þjóöfélögum var háttaö, er % rauninni meö þessu sagt og sannað, aö Græn- land hafi verið undirgefið ís- lenzku löggjafarvaldi meö þeim almenna hætti, er gilti milli forn- germanskrar nýlendu og móöur- lands hennar, þ. e. veriö nýlenda íslands. Þrír ísl. lögfræðingar hér heima hafa ritað um réttarstöðu Grænlands og haldiö því fram, aö Grænland hafi veriö nýlenda íslands frá fundi þess og námi og allt til þessa tíma. Þeir eru Einar Benediktsson, Magnús Torfason sýslum. og Magnús Sigurösson bankastjón. Þessir menn munu að einhverju eða öllu leyti hafa verið lærðir utanlands, því allir vissu þeir skil á þeim fræðigreinum, sem réttarstaða Grænlands veltur á, en þær eru: germönsk réttarsaga, almenn stjórnlagafræði og þjóðaréttur. Þeir rituðu allir af eigin hvötum og án endurgjalds. Skáld og fræðimenn þessarar þjóðar hafa löngum verið sjálf- menntaðir menn. Varðandi rétt- arstöðu Grænlands virðist mér miklu meira leggjandi upp úr dómum sh'kra gerhugulla, mennt- aðra manna, er kynnt hafa sér með gaumgæfni Islendingasögur og vor fornu skjöl og fornu lög, en upp úr dómi manna, sem ekk- ert hafa kynnt sér þær fræði- greinar, sem réttarstaða Græn- lands veltur á, þótt þeir hafi lagapróf í lögfræðigreinum, sem ekkert koma réttarstöðu Græn- lands við. Mesti sægur slíkra dómbærra manna hafa látið það hiklaust í ljósi, aö Grænland hafi frá öndveröu verið og sé enn eign íslands. Ég nefni hér sem sýnis- horn aðeins fáein nöfn slíkra manna: Dr. Rögnvaldur Péturs- son, dr. Jón Stefánsson, L. L. Jóhannesson, Helgi Valtýsson, Baröi þjóöskjalavöröur Guö- mundsson, Matthas Þóröarson fv. þjóöminjavöröur, Benedikt Sveinsson Alþingisforseti, Pétur Ottesen, séra Sveinbjörn Högna- son, Björn Sigurbjömsson banka gjaldkeri, Sigurður Jónsson kaupmaður, Sveinn Sigurösson ritstj., Sigurjón Jónsson rithóf., Tryggvi Þórhallsson, Jörundur Brynjólfsson, Ragnar V. Sturlu- son, Jóhann J. E. Kúld, Erling Ellingsen, Erlingur Pálsson, Páll Hallbjö?'nsson kaup?naður, Guö- mundur Jóhannesson bóndi, Jón- as Halldórsson forstj., Jón Þor- láksson forsætisráöherra, Henry Hálfdanarson, Guömundur GuÖ- munsson forstjóri, A?~ngr. Fr. Bjarnason, Nathanael Mosesson, Jóhann Þ. Jósefsson, Jón Kjart- ansson fo?;stj., Gísli J. Johnsen stórkaupmaöur o. fl. o. fl. Sann- leikurinn er sá, að allur almúgi þessa lands er mér sammála um, að íslendingar eigi Grænland, og að Danir eigi þar alls engan rétt. Því má og eigi gleyma, að 1931 samþykkti Alþingi einróma, að „tsland ætti bæöi réttar og hags- muna aö gæta á Grænlandi“A Svo bætast nú krónjú?ista?'nir og danska ríkisstjó?'nin sjálf viö og lýsa því yfir hátt og heilag- lega fyrir öllum heimimm, aö Grænland hafi allt síöan á vík- ingaöld verið hluti íslenzka þjóð- félagsins sem nýlenda, dominion eöa hhiti úr „vá?'um lögum“, eins og greint hefur veriö frá hér á undan. 1 f greinargerð fyrir þingsályktun- artillögu Jóns Þorlákssonar þ. á. — í framsöguræðunni fórust Jóni Þor- lákssyni m. a. svo orð: „Nú, þótt það liggi utan við þetta mál, þá vil ég aðeins skjóta þvi hér inn í, að ég hef ávallt hugsað mér, að þegar endanleg málalolc verða um sambandið milli fs- lendinga og Da?ia, þegar sambands- lögin falla úr gildi, þá sé sjálfsagt, að samningar komi til ?nilli þessara ríkja um afstöðu hvors fyrir sig til Grænlands. Eg hef fyrir mitt leyti ekki ástæðu til að vænta annars, en að fslendingar geti í þessu efni haft aðstöðu til þess að halda öllum slnum rétti“. Framh. <£------------------------------<$> Heldur þú alltaf reikning yfir út- gjöldin? Já, framan af mánuðinum, en svo tekur kaupmaðurinn við.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.