Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1962, Síða 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1962, Síða 11
á hliðina, ætlaði ég að fara niður í káetu mína og ná í skipsskjölin. Þá var hún hálffull af sjó og hefur sennilega brotnað kýrauga á henni, því að þá var enginn sjór í brúnni. Um kl. 21,45 var Júpiter kominn fast að okkur og ætluðum við þá að fara í gúmmíbjörgunarbátinn, en þá blést hann ekki upp nema til hálfs, og var hann okkur þar með ónýtur. Var þá haft samband við Júpi- ter og sagt, hvernig væri ástatt hjá okkur. Var þá skotið línu frá okkur, sem heppnaðist í fyrstu tilraun og drógum við gúmmíbjörgunarbát yfir til okkar, og höfðu skipverjar á Júpiter sett línu í bátinn, sem þeir ætluðu að draga okkur á yfir til sín. Þegar allir mennirnir voru komnir um borð í bátinn, gáfum við merki um að þeir mættu draga okkur yfir,, en þá hafði taugin festst í skrúfu Elliða, sem kom.af og til upp úr sjónu,m, og gátum við ekki losað hana og urðum því að skera hana frá okkur. Var þá klukkan um 22,20, og 5—10 mín. síðar var skipið sokkið. Kl. 23,00 vorum við 26 skipverjar af Elliða komnir um borð í Júpiter og segir skipstjórinn, Bjarni Ingi- marsson mér, að skipið hafi sokkið 22i/a sjóm. NV frá Öndverðarnesi". ORSÖK SLYSSINS ÓLJÓS — Dómforseti og meðdómendur spurðu síðan skipstjóra um einstök atriði. Ekk kvaðst skip- stjóri viss um það, hvers vegna sjór hefði kom- izt í lestar, en sagðist helzt láta sér detta í hug að rifnað hefði samskeyti við hádekk (skamm- dekk). Ekki minntist hann þess, að sjór hefði komið í vélarrúm. Hann tók fram, að gúmmí- báturinn, sem þeir fóru á yfir um til Júpiters, hefði reynzt sérstaklega vel og varizt ágjöf af prýði. Myndu þeir hafa verið um 30—40 mín. á leiðinni yfir í Júpiter. AÐEINS TVEIR ATHUGAÐIR AF ÞREMUR I ljós kom, að aðeins tveir af þremur gúmmí- björgunarbátum Elliða höfðu verið athugaðir við áramótaskoðunina, og kvaðst skipstjóri ekki vita, hvers vegna staðið hefði á því. Fulltrúi Skipa- skoðunarinnar taldi, að rnikið hefði legið á, til Krlstján Rögnvaldsson sklpstjóri um borff í Júpiter, er hann kom til Reykjavíkur með togaranum. Kristján Rögnvaldsson (t. h.), skipstjóri á Elliða, kveður Bjarna Ingimarsson, skipstjóra á Júpiter, og þakkar honum fyrir sig og sína menn. VÍKINGUR 51

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.