Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1962, Síða 9

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1962, Síða 9
Afsakið herrar mínir, ég verð að skjótast upp á þiljur sem snöggvast“. Hann klifraði upp og gekk franr á skipið. ..Hvernig lízt þér á þetta?“ spurði Iseknirinn. ..Auðvitað er hann geggjaður, en það eru bjórar í heimspekinni hans". »Já, hún er að ýmsu leyti stór- hrotin og athyglisverð. En heldurðu ekki að við ættum að fara um borð 1 bátinn okkar og lofa þeim gamla að sofa hér einum?“ ,,Jú, og vissara er að við höldum v°rð, ef ske kynni að þessi geð- veiklingur fengi æðiskast og honum ^ytti í hug að skera á festina okk- ar- Ef veikindi hans eru krónisk, er hann bara hættulaust flón“. Elgur skipstjóri kom brátt til bf*ka aftur. „Þetta er bágt að vita. Eitthvað klýtur að liafa komið fyrir dreng- lr|n. Hann svarar mér svo ógreini- ^e8a, en hann veinar og barmar sér stöðugt. Kannske að þar séu líka sjúkdómar. — Vilja ekki herr- annir bæta í glösin? Nú fer að storma svo um munar. Heyrið þið kerrar mínir. Nú, jæja, ég er allt af ferðbiiinn. En leiðin er vandröt- l,Ö. ef ég skvldi eiga að létta akker- Urn nú þegar". .•Hvaða leið?“ »Þessi“. Hann benti beint upn á stjörnu- kortið i k&etuloftinu. „Við höfum maras að gæta þarna uúpi, herrarnir auðvitað líka. Bara aÖ allir hefðu jafn góða reglu á skútunum sínum og ég. Jæja, við fáum okkur auðvitað eitt glas 6- bfandað áður en við förum í hátt- lnn, ef herrarnir eru á förum. Ég Svaf líka vel á meðan ég var ungur. Ekkert að þakka. Góða nótt og vær- an svefn". Þegar við vorum komnir um borð 1 okkar eigin bát og seztir að kvöld- gr°gginu þar, sáum við að Elgur skipstjóri kom upp á þiljur með scxtunginp. Stormurinn hafði svipt hokunni úr loftinu og nokkrar stjörnur blikuðu á festingunni. Eegnum stormhvininn heyrðum við slitur af samhengislitlu tali hans víkingur við sjálfan sig. Síðan gekk hann undir þiljur. Ljósið í káetugluggan- um hans var slökkt nokkrum mín- útum síðar. Við gengum einnig til hvílu og slökktum okkar ljós. Storm- urinn færðist í aukana. Storminn lægði þegar leið að morgni. Við vöknuðum snemma og risum úr rekkju. Víkin var næstum því spegilslétt. Elgur skipstjóri svaf, Við heyrðum hroturnar í honum, þegar við bjuggumst til að leysa kaðalinn okkar. Ef til vill hef ég far- ið klaufalega að því verki og vakið hann. Dyrnar opnuðust og Elgur skipstjóri stakk höfðinu út. „Vill ekki skipstjórinn þiggja morgunkaffið hjá okkur?" „Nei, þökk. Nú er bezt að herr- arnir hafi upp akkerið og noti golu- blæinn. Ég hef öðru að sinna. — Úti á firðinum er enn þá leiði". „Við lögðum nafnspjald okkar með árituðum nokkrum þakkarorð- um inn í stýrishúsið, því við vildum ekki vekja gamlan mann". „Þakka fyrir. — Annars fæ ég nú bráðlega heimsókn. Ef til vill verð ég að leysa festar strax i dag. Um það er aldrei hægt að segja neitt með vissu. Já, verið þið sælir herr- ar mínir, — og góða ferð". Um kvöldið vörpuðum við akk- erum undan vitanum á Héraeyju. Hafnsögumaðurinn þar þekkti Elg skipstjóra. Östlund hafnsögumaður sagði svo frá: „Jú, herrarnir mega trúa því, að sé nokkur maður brjálaður, þá er Elgur skipstjóri það. Því, sjáið þið til: hann er guðspekingur, særinga- maður eða hvern skollann maður á að kalla það. Ágætur sjómaður var hann nú samt, og um öll heimshöf hefur hann siglt, og margsinnis um- hverfis jörðina. En svo varð hann fyrir ýmisskonar óláni. Fyrst dó konan hans, þar næst drukknaðf sonur hans, sem var stýrimaður á ensku skipi og hafði tekið skip- stjórapróf í Englandi. Hvorttveggja var mikið áfall fyrir hann. En svo giftist karlflónið á gamalsaldri ungri konu, hún var af bændaættum langt ofan úr sveit. Fljótlega gaf hún sig í kunningsskap við aðra karlmenn, en hann var afbrýðisamur og ást- fanginn, sá gamli. Svo veiktist gamli maðurinn af því að stinga sér í sjó- inn í Vesturvík til að bjarga manni frá drukknun. Það var að áliðnu hausti, hann ofkældist og fékk lungnabólgu. í Skerjagarðinum átti hann smábú, og nú þegar hann var orðinn veikur, sagði frúin, að hún yrði að fá mann til hjálpar við bú- skapinn, því hún kæmist ekki yfir að annast heimilisstörfin ein. Elgur skipstjóri gat raunar hvorki sagt já né nei, þar sem hann lá helsjúkur 1 herberginu sínu, og svo tók frúin frænda sinn á heimilið, einmitt manninn, sem hún hafði átt í mest- um kærleilcum við. Elgur skipstjóri hefur sagt mér þetta sjálfur, þeg- ar við sigldum saman á skipi frá Gávle. Einn góðan veðurdag kom svo frúin upp í herbergið þar sem vesalings skipstjórinn lá og kljáðist við dauðann, og segir: Eigum við að Framhald á bls. 236. 209

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.