Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1962, Síða 12
Eltt átakanlegasta s|ó>
slys veraldar
Að áliðnu sunnudagskvöldi 14.
apríl 1912 sigldi hið stóra nýja
skip White Star línunnar, Titan-
ic, ljósum prýtt á 24 mílna hraða
eftir spegilsléttum haffleti Norð-
ur Atlantshafsins. Logn var á og
fremur bjart veður, en mjög kalt.
Þetta var 5. dagur ferðarinn-
ar, en skipið var á leiðinni frá
Southampton til New York. Allt
hafði gengið vel. Um borð í skip-
inu voru 2207 menn og konur,
1316 farþegar og 891 maður í
áhöfn.
Flestir farþega höfðu tekið á
sig náðir í skrautlegum svefn-
klefum skipsins. Á fyrsta far-
rými höfðu menn aldrei áður séð
annan eins lúxus, skrautleg hús-
gögn og dúnmjúk teppi.
Titanic var mjög fallegt skip,
það var 46,328 brt. Lengdin
882,5 fet og breiddin 92,5 fet.
Hæð skipsins frá sjávarlínu upp
á bátaþilfar var 60,5 fet og fjar-
lægðin frá kili upp í topp reyk-
háfa skipsins var 175 fet, eða
álíka hæð eins og ellefu hæða hús
í stórborg. Reykháfarnir voru
fjórir, þrír í gagni en sá fjórði
gerfireykháfur til skrauts. Tit-
anic var búið 3 skrúfum. Voru
hliðarskrúfurnar tengdar sitt
hvorri fjögra strokka gufuvél, en
miðskrúfan knúin gufuhverfli.
Þessar þrjár vélar framleiddu
50000 hestafla orku, sem auðvelt
var að hækka upp í 55000 hestöfl.
Hin geysistóra kyndistöð skips-
ins var skipt niður í 6 ketilrúm
með samtals 29 kötlum.
Hvað smíði Titanics snerti, þá
vakti mesta eftirtekt hin mörgu
vatnsþéttu rúm, sem fyrirbyggja
attu að skipið gæti sokkið. í skip-
inu var tvöfaldur botn. Þá var
skipinu skipt niður í 16 vatns-
þétt rúm, semmynduð voru úr 15
skiljum, er lágu þversum gegn-
um skipið. En þótt undarlegt sé,
þá náðu skiljurnar ekki mjög
hátt upp. Tvær fremstu og fimm
öftustu náðu aðeins upp að D
þiifari, og hinar 8 í miðjunni
náðu ekki ofar en að E þilfari.
Samt var öruggt talið að Titanic
gæti flotið, jafnvel þótt tvö rúm
fylltust samtímis af sjó. Og eng-
um datt í hug að alvarlegra slys
gæti komið fyrir en það að skilja
milli tveggja rúma gæti orðið
fyrir áfalli. Og út frá þeirri
kenningu var skipið talið algjör-
lega ósökkvandi.
31. maí 1911 var Titanic sjó-
sett úr skipasmíðastöð Harland
& Wolff í Belfast, eftir allmarg-
ar reynsluferðir var svo White
Star línunni afhent skipið. Og 3.
apríl 1912 kom það til Southam-
ton þaðan sem það lét úr höfn 10.
apríl í fyrstu sjóferð sína með
samtals 2207 menn um borð.
Skipstjóri á Titanic var elzti
skipstjóri WThite Star línunnar,
Edv. J. Smith að nafni. Yfirvél-
stjórinn hét Josep Bell. Einnig
voru með skipinu umboðsmaður
skipafélagsins J. Bruce Ismay
forstjóri, og aðalskipaverkfræð-
ingurinn er smíðaði Titanic,
Tomas Andrews forstjóri fyrir
Harland og Wolff í Belfast. Með-
al farþega voru margir velþekkt-
ir háttsettir og vellauðugir menn.
Árið 1912 voru loftskeytin enn
í bernsku. Farþegar Titanics
höfðu því mjög gaman af að
senda kveðjur til frænda og vina
heima.
Sunnudaginn 14. apríl sendu
farþegarnir mörg skeyti og kom
þá að því að fyrsti loftskeyta-
maður, John Philipps, var orð-
inn mjög þreyttur eftir allar þess-
ar mörgu skeytasendingar.
Ýmis skip sendu þennan dag
út tilkynningar um ís á svæð-
inu 44° til 42° norðlægrar
breiddar og 49° til 52° vestur
lengdar. Þannig tilkynnti s. s.
Caronina kl. 9 og s. s. Baltic kl.
13,42 og nokkrum mínútum síð-
ar s. s. Ameríka, en enginn tók
þessar tilkynningar neitt alvar-
lega.
í framsiglunni stóð jú varð-
maður á útkikki, og hvað gat eig-
inlega hent jafn ágætt skip og
þetta.
Um kvöldið var Philipps loft-
skeytamaður gjörsamlega út-
taugaður eftir starf dagsins. Og
nú var hann einmitt búinn að ná
Fyrstu björgunarbátarnir sjósettir frá Titanic.
212
VÍKINGUR