Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1962, Side 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1962, Side 16
Sparisjóðnr sjómanna Pétur Sigurðsson. Fyrir skömmu opnaði Vél- stjórafélag- Islands sparisjóð í húsakynnum félagsins að Báru- götu 11 í Reykjavík. Ekki er mér kunnugt um að önnur stétt- arfélög hér á landi hafi farið inn á þessa braut, ef frá er tal- ið Verzlunarmannafélag Reykja- víkur, en félagar þess áttu aðild að Verzlunarsparisjóðnum og síðar Verzlunarbankanum. Slík- ar stofnanir með nöfnum ein- stakra stétta stofnaðar og rekn- ar af þeim eru þó þekktar í ná- grannalöndum okkar. Nokkru áður en Vélstjórar opnuðu snarisjóð sinn var þeirri hugmvnd hreyft í Siómanna- dagsráði að athuga bæri um möguleika á stofnun Sjómanna- sparisjóðs. Stuttu síðar er mér kunnugt um að a. m. k. Sió- mannafélag Revkiavíkur skrif- aði Véistiórafélaginu bréf og spurðist fvrir um, hvort þeir væru fáanlegir til að víkka út aðildina að sparisjóð sínum. þannig að öll sjómannafélögin, t. d. í Reykjavík og Hafnar- firði (þau sem eru innan Sjó- mannadagsráðs)’ kæmu sér upp sameiginlegum sparisjóði og hann yrði þar með réttnefndur S j ómannasparis j óður. Af þessu töldu beir ekki geta orðið að sinni, því málið væri komið í of fast form, en'buðu hinsvegar að aðrir en beinir fé- lagar þeirra gætu gerst ábyrgð- armenn og að sjálfsögðu væri öllum sjómönnum heimil við- skipti við þá. Nú getur sitt sýnzt hverjum, um fjölgun slíkra stofnana hér á landi. En hitt mun ekki orka tvímælis, hve mikilvægt væri, ef takast mætti að auka spamað og sparifjármyndun meðal ís- lenzkrar sjómannastéttar. Þeir fá oft ef vel gengur og eftir langar ferðir, töluvert fé í hendur, sem því miður mörg- um helz tilla á, ábyggilega ver, en ef fé þeirra væri komið í sparisjóðsbók þegar að landi er 216 komið, þeim sjálfum fyrst og fremst, en einnig efnahagslífi þjóðarinnar, til góðs. Á þetta er þegar komin nokkur reynsla í nágrannalöndum okkar. Þannig urðu spariinnlegg norskra sjó- manna árið 1960 um 200 millj. norskra króna, og var búizt við að sú upphæð mundi stóraukast á næstu árum. Þetta kunna Norðmenn vel að meta og voru m. a. eftirfarandi ummæli við höfð í „Norges Handels og Sjö- fartstidningen“, þegar tölur þessar lágu fyrir: „Norsku bankarnir hrósa sjó- mannastéttinni fyrir spariáhuga sinn og það hugarfar, sem að baki hans er. Þeir sem halda að rétt sé að gagnrýna sjómanna- stéttina fyrir eyðslusemi og drabb, hvort sem blýantssleikj- arar eða venjulegir slúðurberar gera það, ættu að eyða smá- stund til að hugsa um, hvað spariáhugi sjómanna þýðir fyr- ir Noreg, fyrir atvinnulífið, fyr- ir bæjarfélögin og fyrir hvern einstakan okkar". I Danmörku hefur einnig sú niðurstaða fengizt, að spariá- hugi sjómannastéttarinnar sé meiri, en sá sem aðrar stéttir þjóðfélagsins sýni. í Kaupmannahöfn hefur sparisjóðasamstaða, sem ber nafnið „Bikuben". tekið að sér að sjá um sparifjársöfnun sió- manna, í góðri samvinnu við út- gerðarmenn, Sjómannatrúboðið og Velferðarráð verzlunarflot- ans. Launþegafélögin sem eiga félagsmenn sína á skipunum, styðja starfsemi þessa með ráð- um og dáð. Hinar góðu undir- tektir undir hugmyndina um sparifjársöfnun sjómanna, hafa gefið mjög góða raun. Talsmað- ur „Bikuben" segir m. a. í blaða viðtali snemma árs 1960: „Tala þeirra sjómanna, sem taka þátt í þessum sparnaði, fer ört vax- andi. Og á hinum stutta tíma, sem þessi liður starfsemi okkar hefur verið í gangi hefur tala þátttakenda farið ört vaxandi. Sjómennirnir eiga mikið hrós skilið fyrir áhuga sinn. Þeir eru ágætr viðskiptamenn og meðal þeirra beztu hvað innlegg snert- ir. Við höfum þegar orðið varir mikils áhugá eftir að við send- um auglýsingabækling um borð í skipin. Við sjáum um ýmsar greiðslur fyrir sjómennina, svo sem húsaleigu, greiðslur til fjöl- skyldunnar og ýmislegt fleira. Um opinber gjöld þurfum við ekki að hugsa, þau eru greidd jafnóðum hjá útgerðinni". - Það er ekki aðeins „Bikuben" sem stuðlað hefur að þessari á- nægjulegu þróun heldur hafa sparisjóðir um alla Danmörku tekið þátt í þessu starfi, einnig Sjómannatrúboðið, og þá eru miklar fjárupphæðir hjá flest- um stærri útgerðarfyrirtækjum- Til að stuðla enn frekar að spariáhuga sjómanna sinna, bjóða útgerðarfyrirtækin mjög góð kjör og háa vexti, sem sparisjóðimir geta ekki greitt. Þrátt fyrir það sýnist að sjó- mennimir velji heldur spari- sjóðina og beinast þessi við- skipti í æ ríkari mæli til þeirra, og er það eftirtektarvert um- hugsunarefni út af fyrir sig. Hér á íslandi eru önnur við- horf. Slík þjónusta sparisjóða eða banka og hinna stærri út- gerðarfyrirtækja, þekkist ekki, en í staðinn virðist um öfuga þróun að ræða. Sá siður er nú ríkjandi hjá nokkrum útgerðar- fyrirtækjum að neita fastráðn- um mánaðarkaupsmönnum um peningaúttekt þegar skip þeirra eru í höfn, þótt komið sé að mánaðamótum. Þetta hefur ver- ið gert þrátt fyrir skýr ákvæði VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.