Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1962, Síða 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1962, Síða 25
Leikdómarmii Gagnrýnandmn og rithöfundurinn danski, Sven Lange, skrifaði eitt sinn mjög har'ðan leikdóm í Politiken. Nokkru seinna hitti hann leikstjórann a fömum vegi. — Þér ættuð sjálfur aS setja leik á sv*ð, sagði leikstjórinn hæðnislega, og Þá kæmi í ljós, hvort þér getið gert nokkuð betur sjáffur. Sven Lange svaraði: —• Ef ég panta mér soðið egg á ftiatsölustað, og það reynist vera fúl- egg, hef ég þá ekki leyfi. til að fimia að þessu, þó að ég geti ekki verpt góðu eggi sjálfur? * Úr bréfi frá Gröndal >,Hér er aldrei neinn miðvikudagur, heldur hleypur tíminn yfir þann dag, svo þá er ekkert, klukkan er hér aldr- ei tólf, heldur alltaf eitt. Hér kyssir lnaÖur allt kvenfólk við hvern punkt 1 ræðunni, þegar maður talar við það, hlappar þeim á hægri kinnina við hvern semikolon, og faðmar þær við bverja kommu; þegar exclamations- teiknin koma fyrir, þá má maður gera við þær hvað sem maður vill“. (Skrifað frá Þýzkalandi 1858). * Þegar maðurinn kom heim, sat kon- an hans í eldhúsinu með hatt á höfð- lnU og slör fyrir andlitinu og drakk te. — Hvað í ósköpunum gengur að Þér? hrópaði maðurinn. — Eg fann hvergi tesíuna, svaraði konan. Fjölakyldumynd. VÍKINGUR Joe Louis, fyrrverandi heimsmeist- ari í hnefaleik, var eitt sinn í bíl með vini sínum. Þeir lentu í árekstri við vörubíl. Enginn mciddist, og ekki var auðvelt að segja um, hverjum árekst- urinn liefði verið að kenna, en vöru- bílstjórinn rauk út úr bíl sínum og jós skömmum yfir Joe Louis og hót- aði honum líkamlegum meiðingum. Er leiðir skildu, spurði vinuriim, livemig í ósköpunum hefði staðið á því, að hann hefði látið bjóða sér annað eins. — Hví gafstu dónanum ckki einn á hann? spurði hann. — Það er nú það, anzaði Joe. — Heldurðu, að Caruso hafi sungið aríu fyrir hvem þrjót, sem móðgaði hann? 'JrttaktiH Trúboði var að halda ræðu og sagði eftirfarandi sögu: Eitt sinn var sankti Pétri færð sú sorgarfregn að 75% af öllum karl- mönnum í heiminum væra trúlausir. Þetta var Pétri mikið áhyggjucfni og eftir nokkur heilabrot ákvað hann að skrifa hinum tráuðu 25%. Yitið þér herrar mínir hvað stóð í bréfi sankti Péturs? Nei, hrópuðu allir karlmenn- imir í hópnum í kór. — Já, þetta datt mér í hug, heiðingjarnir ykkar, ykkur hefur auðvitað ekki verið sent bréf. * Hann tók ósigrinum eins og maður — kenndi konu sinn um hann. * Það er hægt að geyma allt í spíri- tus — nema leyndarmál. (Storm P.) * Sá er munur á jórtrandi kú og ungri stúlku með tyggigúmmí, að augnaráð beljunnar er skynsamlegt. (Sænskt bændablað) * Mér gekk illa með báðar eiginkon- umar mínar. Sú fyrri vildi skilja við mig, en sú síðari vildi það ekki. (R. Keller). Var ástin svona endaslepp í sumar? Hamingja í hjónabandi er miklu meira komin undir öðra en að finna hina réttu persónu. Hún er undir því komin að vera hin rétta persóna. * Eg hef ekki kennt neinum að með- höndla boga, sem hefur ekki að lok- um gert mig að skotmarki. * Gleðin er ilmvatn, sem þú getur ekki stökkt á aðra án þess að fá nokkra dropa á þig sjálfan. * Sá, sem tekur þátt í gamansemi sinnar eigin fjölskyldu, verður aldrei leiðinlegur, að áliti annarra. * Áhrifaríkustu predikanimar era þær sem gera þig undrandi yfir því, að presturinn skyldi finna það á sér, að þú kæmir í kirkjuna. * Sumt fólk getur staðið lengur við í klukkutíma heldur en aðrir í heila viku. * Kotrass eða smáþorp er það, þar sem fréttimar eru komnar til fólks á undan blöðunum. * Að geta skilið konu þýðir ekki nauðsynlega það, að geta skilið nokkra aðra konu. * Þegar ávani fer að kosta peninga, þá er hann kallaður „hobby“. * Fcgurstu Madonnurnar er ekki að finna á málverkasöfnum eða högg- myndasöfnum heldur í endurminn- ingasafni þínu frá þínu eigin heimili. 225

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.