Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1962, Blaðsíða 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1962, Blaðsíða 29
1- Ekki er vitað til að neinar þjóð- lr hafi sett ákvæði um stöSugleika fiskiskipa, enda mjög skiftar skoðan- lr um, hvað sé hæfilegur stöðugleiki. pf stöðug skip eru ekki almennt tal- ln góð sjóskip né vinnuskip, en of >)Tnjúk“ skip geta aftur á móti veri'ð varasöm. Engin skörp mörk eru á »ulli, en þó myndi ekki valda veru- legum erfiðleikum að setja ákvæðin, sem myndu verða að byggjast m.a. á 1’yrjunar-metacenterhæS (G M) skips- ms 0g réttiarms-bogun (G Z-bogum) °g þá kveðiS á um lægsta hámarks- Punkt og lágmarks-hallagráSu þegav Z-bogin sker núll-línu, miðað viS mismunandi hleðslutilfelli. Engar íslenzkar tréskipa-smíða- stöðvar eru nú færar um aS gera slíka útreikninga, og heldur ekki f jöld- Itl allur af þeim erlendu skipasmíSa- Stöðvum, sem nú smíða fiskiskip fyrir lslenzka káupendur. Gögn eru yfirleitt heldur ekki fyrir hendi, sem hægt er nota viS þessa útreikninga á göml- Ulu skipum, og yrði því aS mæla þau llPP, teikna aS nýju og reikna síðau "t- íslenzkir skipaverkfræSingar eru táir ennþá og erlendir tæplega fá- unlegir, svo framkvæmd yrði án efa, ®rfið og tæki langan tíma, ef reikna á "t stöðugleika allra eldri skipanna. Ný skip gætu íslenzkir tréskipasmiðir heldur ekki teiknaS lengur sjálfir, neina að nokkru leyti, og yrSi þá a'S leita til skipaverkfræðinga um það utriði, innlendra eða erlendra. Sjálfa ^treikningana má þó vinna nokkru tljótara meS því að hafa aSgang aS rafmagns-heila (eins og t.d. DASK í En’Upmannahöfn ásamt kodnings-cent- ral fyrir skipasmíðar.) Stöðugleiki fiskiskipa sem annarra skipa gerbreytist við mismunandi hleðslu. Þessvegna þarf að reikna út ^usmunandi hleðslu-ástand skipanna, Setja þaS upp í töflum og bogum, bannig frágengið aS skipstjóri, sem kefir lrert um þetta, getur umreiknað (!1ns og hann þarf með í daglegri notkun. 2. StöSugleikaútreikningar verða að ^uiðast við hleðsluborS skipsins, og það er því útilokað að setja ákvæði Ul11 stöðugleika, nema setja um leiö Ueglur um dýpsta leyfilega hleðslu- °rð, 0g er þá varla um annaS að ræða en að láta núverandi fiskiskipa- ^ÍKINGUR hleSslumerki, sem nú eru í gildi viS flutning fisks til útlanda, einnig ná til fiskiskipa á veiðum. Lestarstærðir eru mismunandi í hlutfalli við stærS fiskiskipa. Sum myndu e.t.v. aðeins geta fyllt lestar á síldveiðum, en skip með litla lest gætu e.t.v. látiS eitthvaS af síld á þilfar líka. Það yröi aS ákveða fyrir hvert einstakt skip, hvort liægt er að leyfa að setja minna í lest og eitt- hvað á þilfar, eSa hvort lest yrSi að vera full, áSur en hægt væri að setja á þilfar, ef skipið væri ekki komið á hleðslumerki með fulla lest. Varla yrSi hjá því komizt aS hafa stöðugt og nákvæmt eftirlit með hleöslu fiskiskipa, þannig að ofhleðsla og vanhleðsla yrði tafarlaust kærS, svo jafnt gengi yfir alla. 3. Til aS stöðugleikaútreikningar komi að gagni er að sjálfsögðu nauS- synlegt aS íslenzkir fiskiskipaskip- stjórar hljóti kennslu í þessum mál- um svo þeir skilji til fulls ástand skipsins við mismunandi hleðslu. Til að svo megi verSa mun þurfa að lengja námstíma fiskiskipstjóranna nokkuð, og þeir sem þegar hafa feng- ið réttindi yrðu aS fara á viðbótar- námskeiÖ vegna þessara mála. Ollum mun ljóst, aö hér er um aS ræða stórmál er varðar bæöi öryggi íslenzkra sjómanna og fjárhagslega af- komu þeirra og útgerSarmanna. Að lokum vil ég benda Henry A. Hálfdánarsyni á það, að þessi síðasta grein hans hefir í mínum augum og sennilega fjölda annarra tekiS af allan vafa um tilgang hans með á- rásargreinum á mig persónulega og sldpaskoðun ríkisins í hvert sinn er sjóslys verður. Tilgangurinn er svo sannarlega ekki aS auka öryggi ís- lenzkra sjófarenda, eins og hann reyn- ir að láta í veöri vaka, heldur að reyna að sverta og ófrægja störf þeirra manna, sem mest vinna aS þessum öryggismálum. Ef tilgangur Henrys væri aukið öryggi sjófarenda, og hann hefði góð ráS til endurbóta, væri þá ekki sjálf- sagðari leiö fyrir hann að koma á skrifstofu skipaskoðunar ríldsins og ræSa í vinsemd við mig og samstarfs- menn mína mn endurbætur. Síðan ég tók við þessu starfi mínu árið 1954 hefir Henry A. Hálfdánarson áldrei látið sjá sig hér til viöræðna um þessi mál, en strax ef einhver sjóslys verða, er hann fljótur til með greinar í blöS- um, til að reyna aS sannfæra alþjóð um að ha.nn einn, vinni aS þessum málum. Eg kýs hinsvegar margfalt frekar að fá að vinna í næði að athugun or- saka sjóslysa, og á hvern hátt megi raunhæft bæta úr. Þetta hefir verið gert hér hjá skipaskoðun ríkisins, þetta er gert í dag og mun verða gert áfram, því aS á þennan hátt tel ég mig vinna meira gagn fyrir öryggi íslenzkra sjófarenda, en aS skrifa svargreinar við dylgjum og árásum eftir Henry A. Hálfdánarson. Það er athyglisvert að í livert skifti sem eitthvað ber út af í skipi, þá virSist Henry telja að skipaskoöunin eigi sök, þótt skoðun skipa sé aðeins einu sinni á ári. — Skoðun bifreiða fer líka fram einu sinni á ári, en aldrei hefi ég séð grein eftir Henry þar sem hann telur bifreiðaeftirlitið ábyrgt, ef dauðaslys veröur vegna þess að eitthvað bilar í bifreið. Öll mannanna verk geta bilaS. Jafnvel þótt skip eða bifreiS sé að því er bezt verSur séð í fullkomnu lagi við 'árs- skoðun, þá getur eitthvað bilaS síðar er veldur slysi, án þess aS hægt sé að kenna skoðunarmanni né öðrum van- gæslu í starfi. Meginmálið er að allir bæði eftirlitsmenn, sjófarendur og bif- reiðastjórar geri sitt til að alltaf sé allt í eins góðu lagi og mannleg dóm- greind leyfir. 20. sept 1962 Hjálmar B. BárSarson. * Ritnefnd Víkings sá ekki ástæöu til aS neita birtingu þessarar greinar enda þótt. hún teldi eSlilegra aS hann hefði haldið sig eingöngu við hina faglegu hlið málsins, og tokur meS þökkum boði lians um frekari upp- lýsingar um þessi mál. Persónuleg ummæli hans mn Henry Hálfdá.narson telur ritnefndin stangast á við staS- reyndir og frábiður sig því alla á- byrgð á þessum lunmælum greinar- höfundar. Ritnefnd Sjómannabl. Víkings. 229

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.