Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1962, Page 32

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1962, Page 32
maðurinn áfram, „þér hljótið að vinna fyrir launum yðar frekar með höfðinu heldur en með höndunum“. Nú jæja, „að- alatriðið er að vinnan gangi, sem maður á að sjá um“. Hann ýtti sínum mjúka og beyglaða stráhatti aftur á hnakka, setti hendur sínar á mjaðmirnar,. spennti jakkann sinn aftur fyrir og þandi út brjóstkassann undir bláköfl- óttri skyrtunni. Hann var stór- kostlegur á að líta. Hvorki samtalið né maðurinn geðjaðist tollaranum. Hann ótt- aðist líka, að Ágústa von Katj- endorf myndi fara aftur á skip- ið, og hann þá missa af henni. Hann vildi fara, losna við manninn. „Uss“ sagði maðurinn, gerði smá hnykk með höfðinu og blikkaði með öðru auganu. „Ég gæti sagt yður dálítið, en þér megið ekki koma upp um mig“. Hann leit flóttalega í allar átt- ir. „Auðvitað ekki“, sagði tollar- inn og var nú orðinn óþolinmóð- ur. „Á eftir kemur hingað“, sagði maðurinn trúnaðarlega, „eyki með gráum hesti fyrir. Og á vagninum er pipar sem vegur 180 pund“. „Vitið þér þetta áreiðanlega?1 spurði tollarinn. „Svo vel, eins og ég stend hér“, sagði maður- inn. „Og ef þér finnið ekki þennan 180 punda pipar, þá er það ekki mér að kenna.“ Þar með gelck hann stoltum skrefum á braut og fór inn í Friesenkrá. Tollarinn stóð dálitla stund eftir, en gekk síðan að móflutn- ingabátnum. Ágústa von Katj- endrof hafði lokið við þrifin á þilfarinu og hengdi upp dulurn- ar á borðstokkinn til þerris, sem hún hafði notað við þvott- inn. „Jæja, bara búin?“ sagði toll- arinn kátur, en þetta gekk leik- andi létt. Ágústa von Katjen- dorf brosti yndislega, „Ég er núna mjög rösk,“ sagði hún, 282 hallandi höfðinu á hlið og leit á hann tælandi augnaráði. Tollaranum hitnaði innan- klæða. „Það er mjög heitt í dag“, sagði hann og strauk feiminn handarbaki annarar handar sinnar yfir ennið. „En kvöldin," sagði hann, „kvöldin eru svo falleg hér við víkina. Þeirra verður maður að njóta á réttan hátt“. Ágústa von Katjendorf leit löngunarfullum augum út í buskann. „Ó já, kvöldin------“, sagði hún, „þeirra ætti maður vissulega að njóta. En þegar maður er svo einmana eins og ég-------, og ef til vill þér líka Tollarinn stóðst ekki freist- inguna. Hann mælti sér stefnu- mót við stúlkuna um kvöldið. Þarna hinu megin við litla báta- stiginn ætluðu þau að hittast. Honum fannst, að hann gæti unnt sér þessa, því að þegar hann kæmi á stefnumótið myndi hann hafa lokið sínum fyrsta tollvörufundi og hafa náð 180 pundum af pipar. Tollarinn gekk eina hring- ferð. Þannig hélt hann uppi njósnum í plássinu, en hann fór ekki langt í burtu, svo að hann missti ekki sjónar af eykinu með gráa hestinum. Þegar hann kom aftur niður á bi*yggju heyrði hann skrölt í vagni. Og brátt beygði vagn með gráum hesti fyrir homið á síðasta hús- inu við víkina. Hjartað í tollar- anum hoppaði,---------hans stóra tækifæri var komið. Vagninn var hlaðinn heyi. Ekki eins hátt hlaðinn og aðrir vagnar, sem komu af engjunum meðfram fljótinu og auk þess var heyið hlaðið heldur óreglu- lega. Þetta var allt tortryggilegt. Bóndi sat ofan á heyinu og hélt taumnum í höndum sér. Tollar- inn stöðvaði vagninn. „Er nokkur tollskyld vara hjá yður?“ spurði hann. „Nei“, sagði bóndinn. „Ég sótti aðeins heyið“. „Þér eruð með tollskylda vöru“, sagði tollþjónninn og leit fast á hann. „Þér hljótið þá að vita það“, sagði bóndinn kæruleysislega. Tollarinn lét ekki plata sig- „Yðar saklausa andlit stoðar ekki“, sagði hann strangur. — „Farið niður af vagninum, ég verð að rannsaka þetta“. Bóndinn fór ofan af vagnin- um, batt tauminn fastan og gekk afsíðis, eins og málið kæmi honum ekkert við. — Tollarinn klifraði upp á heyið og byrjaði leitina. Auðvitað hafði piparnum ver- ið komið fyrir neðst undir hey- inu, en það skyldi nú ekki verða kápan úr því klæðinu. Hann kastaði hverju heyfanginu af öðru ofan af vagninum. Um leið og fóðrið á vagninum minnkaði hækkaði hrúgan á göt- unni. Tollarinn rótaðist um, stakk og reif upp heyið allt nið- ur á vagnpallinn. Sólin var brennandi heit, og nú lét hann handleggina síga og leit ráðalaus umhverfis sig. „Nú hlaðið þér vagninn aft- ur“, sagði bóndinn. „Á meðan fer ég inn í Friesenkrána og f® mér bjór“. Síðan gekk feiti bóndinn sperrtur inn í krána með góða samvizku. Hvítu skyrtuermarnar hans glitruðu eins og dýrðarbaugur umhverf- is hinn saklausa mann. Timpe tollari leit gramur á eftir honum. Hann var honum reiður fyrir að vera ekki með pipar 1 vagninum. En nú varð hanú að koma heyinu upp á vagninn, áður en fólkið kæmi að. Hann gekk inn í næsta hús, fékk lánaða heykvísl og byrjaði að hlaða vagninn. Síðdegissólin var brennheit og loftið var klakhlýtt. Svitinn rann niður eftir andlitinu og fötin límdust við hann. Börn hópuðust að vagninum og horfðu forvitin á hann. Pei- mann fiskimaður reri báti s.ín- sínum að bryggjunni og leit sín- um bláu augum steinhissa a manninn, hestinn og vagninn. Kona kom með körfu á hand- YÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.