Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1962, Side 33

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1962, Side 33
leggnum, þurrkaði einu baminu um nefið og flýtti sér síðan til nýlenduvörukaupmannsins. — Tveir strákar komu út úr Fries- enkránni og slöngruðu framhjá. Ágúst von Katjendorf kom út úr eldhúsklefanum á þilfarinu, af nærgætni leit hann fyrst upp í loftið og yfir víkina en því næst á tollvörðinn. Hann þóttist huga að reiðaútbúnaði skipsins. Tollarinn hamaðist með hey- kvíslina og svitnaði, hausinn á honum var jafn rauður og blússan hennar Ágústu. Hann bað með sjálfum sér að hún kæmi ekld hingað og sæi skömm hans. En frétta myndi hún af þessu — já, áreiðanlega mun hún frétta þetta. Þegar allt heyið var komið upp á vagninn studdist tollar- inn við heykvíslina og kastaði niæðinni, opnuðust þá dyr Fries- enkrárinnar og bóndinn kom aftur. Hann rannsakaði heyið, leysti tauminn og klifraði upp á heyið. „Nú, segið mér aðeins“,. sagði bóndinn ofan úr heyinu, „að hverju voruð þér að leita hjá mér?“ „Mér var tilkynnt", sagði tollarinn sneyptur, „að þérhefð- uð 180 pund af pipar á vagni yðar“. „Það er rétt“,. sagði bóndinn og lét hestinn fara af stað. „Ég heiti Pipar og veg 180 pund“. Hann ók á braut. „Lifandi þungi“, hrópaði hann hlæjandi. Tollþjónninn gekk heim,. hann leit hvorki til hægri né vinstri. Hann var alveg niðurbrotinn. Það hafði verið leikið á hann og nú yrði hann settur frá em- bætti áður en hann drykki einn „grogg“ með fólkinu við víkina. Hann settist niður í herbergi sínu og ákvað að láta engan sjá sig þennan dag. Hann reyndi að lesa, hann leit yfir síðustu toll-fyrirskip- anirnar, en hann gat ekki hugs- að um neitt. Það húmaði að kveldi. Loftið yfir víkinni var mollulegt og víkiNgur blátt. Hár bærðist ekki á höfði. Ágústa von Katjendorf stóð við bátastiginn kl. 9.00 í rauðu blússunni sinni og grænu pilsi. Hún stóð hreyfingarlaus. Toll- arinn var á gægjum á bak við gluggatjöldin. „Eins og blóm“, hugsaði hann,. „eins og blóm stendur hún þarna“. En hann þorði ekki að fara til hennar. Ágúst von Katj endorf sat á þilfari skips síns og blés frá sér bláum reykjarmekki úr stuttu pípunni sinni. Við hlið Mikið og margt hefur verið ritað og rætt um skrímsli þetta síðastliðin, já, 1000 ár. Fjöldi sjónarvotta háfa til- kynnt að hafa séð skrímslið, en þó hefur engin óyggjandi sönnun feng- izt fyrir tilveru þess — ennþá. Meðal þeirra sem segjast hafa séð skrímslið eru menn, sem ekki verða sagðir Ijúga, eins og til dæmis þeir, sem ekkert höfðu heyrt um það áður, læknar, prestar, lögfræðingar o. fl. lærðir menn. Vísindamenn segja að í minnsta kosti 50 tilfellum síðastliðin ár, sem frásagnir af skrímslinu hafa verið sendar þeim, sé ómögulegt að rengja og telja allt sjónhverfingu eina eða vitleysu. En nú skal gerð tilraun, sem vonandi slcer úr um mál- ið. Brezkir vísindamenn hafa nú sam- einazt um að rannsaka þetta og hafa verið valdir til þess þekktir fræði- menn frá báðum hinmn viðurkenndu liáskólum landsins, Cambridge og Ox- ford, en undirbúningsrannsókn fór fram árið 1960, þar sem vísindamenn létu halda, eða héldu sjálfir vörð um hans sat Lúder Bohls með drag- spilið á hnjánum. Hann lék lagið „Sveinninn rauða rósu sá . . .“ ög dró lang- an seiminn. Þegar tollarinn gekk hring- ferð sína næsta morgun, heils- aði fólkið honum jafn vinalega og áður. Víkin var björt og ró- leg, léttur andvari gáraði aðeins sjóinn. Út úr húsunum lagði ný- brenndan kaffi-eim. Ö. S. þýddi. vatnið mánuðum saman, en án árang- urs. Nii skal nota nýjustu tækni, nefni- lega asdictæki og allt vatnið nákvæm- lega rannsakað frá yfirborði niður að botni. Undirbúningsrannsóknimar gáfu glöggt yfirlit yfir fiskalíf í vatn- inu, því að skrímslið er ekki einbúi þarna og þarf sennilega eitthvað til þess að lifa á, eins og aðrar (ekki dauðlegar) skepnur. Rannsóknir þessar byrjuðu nú í júlímúnuði, og vekur mikla athygli meðal leikra og lærðra, sem vænta má og verður fróðlegt að heyra ár- angurinn. Vonandi upplýsist þessi aldagamla ráðgáta nú, á þessu sumri. STÓR SKIPSSKRÚFA Önnur af tveim skipsskrúfum smíð- aðar af Birkenhead Works Mangan- ese Bronz Ltd., eru álitnar vera þær stærstu í heimi. Önnur er ætluð 77.000 lesta (d.w.) sldpi en hin 86.000 lesta olíuskipi, sem verið er að byggja fyr- ir Esso Petroleum Co. Ltd. Þvermál skrúfunnar er 7.500 m/m eða 24 fet og 7,5 þumlungar. Þá vita menn það. Heimsins stœrsta slcipsskrúfa. 233

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.