Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1962, Page 34

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1962, Page 34
Gunnar Magnússoti frá Reynisdal: Á TOGARANUM „KÓP“ Veturinn 1932 réðist ég sem háseti á togararm Kára Sölmundarson frá Viðey. Var það síðasta úthald þaðan. Skipstjóri var Guðmundur Guðmunds- son Ránargötu 18 Reykjavík. Guðmundur þótti harðduglegur skipstjóri og góður fiskima'ður, en nokkuð kröfuharður við menn sína. I Viöey var þá dálítið þorp á aust- ur enda eyjarinnar með eitthvað á þriöja hundrað manns. Þar stendur nú ekkert eftir nema skólahúsið autt og yfirgefið. í Viðey var bryggja allgóð og aSstaða til aS taka á móti fiski til verkunar (saltfiski), og hafði verið þar all blómlegt atvinnulíf með- an Kárafélagið var og hét. Utgerð þennan vetur rak ÞórSur Ólafsson í Reykjavík, og hafði hann togarann Kára Sölmundarson á leigu. ÚthaldiS mun hafa staðið í tvo mánuði marz og apríl eöa þann tíma sem fiskirí var mest. Það var ekkert sögulegt við þetta úthald. Ollum, sem viS það unnu þótti þaS fremur stutt og tekju- rýrt, enda var kreppan þá komin til sögunnar og hafði sín lamandi áhrif á útgerðina. Að vertíSarlokum kvaðst Guðmund- ur skipstjóri vilja fá mig fyrir háseta til sín næsta vetur, ef hann yrði meS skip. Hélt ég svo heim til mín austur í Mýrdal. Um mánaSamótin janúar og febrúar hringdi Guðmundur til mín og falaði mig fyrir háseta. Kvaðst, hann vera búinn að kaupa togarann Þorgeir Skorargeir (gamla Ymir), sem áSur hafði veriS eign Kárafélags- ins í Viðey. RéSist ég til Guðmund- ar og hélt hið fyrsta til Reykjavíkur. Þegar þangað kom frétti ég nánara um þetta nýstofnaða útgerSarfélag. Meðeigandi og framkvæmdastjóri var Páll Ólafsson frá HjarSarholti. Pé- lagið liét s. f. Kópur og var nafn tog- arans sama. Togarinn Kópur var um 270 smálestir brúttó aS stærð. Upp- haflega hét hann Ýmir eins og áður segir, byggður í Þýzkalandi fyrir Hjalta Jónsson og Agúst Flygenring * og fleiri. SíSar komst hann svo í eigu Kárafélagsins í Viðey og hét þá „Þorgeir Skorargeir“. Hafði hann æ- tíð reynst mesta liappaskip og góður í sjó að leggja. Skipstjóri var GuS- mundur Guðmundsson, sem fyrr get- ur, stýrimaður Sigfús Magnússon og vélstjóri Sigurjón Kristjánsson. Kokk ur var Guömundur Sveinbjörnsson, kallaður Dúddi. Hafði hann lengi ver- ið með GuSmundi skipstjóra á Kára. Hásetar voru margir utan Reykjavík- ur og á öllum aldri Þar á meðal var Sigvaldi Indriðason kvæðamaSur frá Skarði, bróðir IndriSa miSils. Þórarinn Böðvarsson í Hafnarfirði átti aö annast verkun aflans, og átti að leggja upp í Hafnarfirði ÞaS mun hafa veriS um 20. feb. sem skráð var á Kóp og lagt út til fiskiveiða frá Hafnarfirði. Fylgdu fé- laginu og skipshöfn góðar óskir, því aö þá valt á ýmsu fyrir útgerðinni. Nú var stímað vestur í Jökuldjúp. ÞangaS gerSum við nokkra túra, og var afli allsæmilegur á Kóp, þótt lít- ill væri og orðinn nokkuð aldraður. Reyndist hann prýðilegt sjóskip. Velti af sér hverri báru. Var veltingurinn að vísu nokkuð þreytandi, en Kópur var ekki „blautur" eins og margir hinna togaranna voru. Togaði liann vel á öllu venjulegu dýpi, vélarafl hans var 550 hestöfl. ViS vorum nokkuS færri hásetar á Kóp en á stærri togurunum og höfð- um því heldur betri útkomu úr hverju lifrarfati. Kaup háseta ])á var 214 kr. á mánuði og lifrarhlutur 28 kr. af fati. Venjulegast skiptist lifrarhlutur- inn í 28 staði og kom þá 1 kr. af fat- inu í hlut hvers. Við fengum þetta 80 til 90 tunnur af lifur í túr. Kópur rúmaði ekki meiri afla af fiski fram- an af vertíS. En á Selvogsbanka var fiskur oft betur lifraður, enda þar ufsablandiS. Þegar á vertíSina leið, var haldið á Selvogsgrunn, og þangað gerðir nokkrir túrar. Skömmu fyrir páskana lukum við túr á „Bankanum", allt var gert klái-t og lialdiS heimleiðis. Stór- viðri var komið af suðaustri meö snjókomu, og var það lens fyrir okk- ur. Kópur gerði það gott á lensinu vestur fyrir Reykjanes. Bar ekkcrt til tíðinda þar til komið var aö Garð- skaga. Heyrði þá loftskeytamaöurinn neyðarkall frá „Skúla Fógeta“ sem þá var strandaður við Grindavík í mold ösku byl og stórbrimi. Er sú harmsaga enn í fersku minni. Eftir að viö vorum komnir fyrir Reykjanes varð miklu sjóminna en snjókoma á- köf. Við GarSskaga var tekin stefna til Hafnarfjarðar og stímað á fullri ferð. Skipstjóri var á stjómpalli. Sjó- lagið batnaöi óðum eftir því sem inn- ar dró, lágsjávað var. Segir svo ekki af ferSum okkar, fyrr en að Kópur strandar á fullri ferð. Reyndist þetta vera á Keilisnesi á Vatns- leysuströnd. Við strandið varð uppi fótur og fit um borS í Kóp. Skipið hafði skriðiS nokkum spöl á botnin- um, áður en það stöðvaðist. Upp úr sjó stóðu flúðir og sker umhverfis togarann. Halli allmikill kom á skipið þar sem það lá strandaS. Skipstjóri lét lóða allt í kring um Kóp og reyndist um jafnt dýpi að ræða. Loft- skeytamaðurinn kallaöi þegar upp Reykjavíkurstöðina og tilkynnti strandiS. Þar sem aSfall var og eng- in hætta á ferðum um borð vom eng- ar ráðstafanir gerðar til aS yfirgcfa skipið. Skipstjóri beið svo í eina og hálfa klukkustund, en geröi þá til- raun til aS bakka skipinu út, og losn- aði Kópur þá úr strandinu. Leki dá- lítill hafði komið á botninn, en ekki hættulegur. Guðmundur skipstjóri lét nú keyra hálfa ferð til Hafnarfjarð- ar, og kommn við þangaö síðari hluta nætur. Aflinn var settur í land og síðan haldiS til Reykjavíkur og Kóp- ur tekinn í slippinn til skoðunar. — Rcyndust nokkur hnoð sprangin og margar plötur beyglaðar. Sérfræðing- ar ákváðu aS gera við hnoðin og steypa í botninn. Að þessu loknu var skipið sett á flot, tekið kol, salt og vistir og lagt í nýjan túr að kvöldi skírdags. Um nóttina var stímað aust- ur á Selvogsbanka í afspyrnu austan roki. En Kópur gamli svamlaði vel og tók engan sjó á sig. Veðriö liélzt all- an föstudaginn langa og var alltaf „slowaö“ og látið reka á víxl. Þegar VÍKINGUR 234

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.