Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1962, Síða 35

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1962, Síða 35
veðrinu slotaSi var farið að toga og ekki kom neinn leki að Kóp við 811 ósköpin sem á höfðu gengið. Sýndi Slg þá sem endranær, að „Ými“ hafði ekki verið krækt saman, enda hafði hann verið smíðaður úr þýzku her- skipastáli. Lukum við svo við vertíð- lna án þess að fleira sögulegt kæmi fyrir. Veturinn 1934 var ég aftur háseti ^eð Gruðmundi á Kóp. Skipshöfn var aÓ mestu leyti sú sama og árið áður. Daglegt líf á sjónum var nokkuð kerfisbundið. Það var lagt út á ver- ^íð um svipað leyti ár eftir ár og Verið ætíð á sömu miðum um sama leyti vertíðarinnar. Togararnir voru Þá nýbyrjaðir að fiska á Eldeyjar- hanka, þegar tregðast tók á Selvogs- Srunni. Var það djúpt suðvestur af Eldey. Þama hafði verið mikið stund- nð veiði af línuveiðurum áður. fslenzka línuveiðaraútgerðin mátti bá heita úr sögunni. En Norðmenn stunduðu þá enn línuveiðar við fs- land, og um þetta leyti einmitt á svip- uðum slóðum og togaramir vora fam- lr að toga á. Guðmundur á Kóp hélt uú á Eldeyjarbanka og gerði þar túr. Ýar þar nægur fiskur og gott að toga. Við vorum búnir að enda túrinn °g komnir á heimleið. höfðum stímað 1 eina klukkustund eða svo. Þetta var Urn miðnættið og á dekkinu var bjart því unnið var að því að gera að. Ýeður var stillt og gott í sjó. Skip- stjóri var genginn niður til svefns, Sigfús stýrimaður var á verði á sijómpalli, Sigvaldi kvæðamaður var VÍKINGUK við stýrið. Eg gaf þessu engan sér- stakan gaum, hélt að hljóðið hefði komið ofan úr brú. En örstuttu síðar varð árekstur. Skip hafði orðið þvert fyrir á leið okkar. Kópur hafði siglt á. Skipið sem varð fyrir ásiglingunni hafði verið sama sem ljóslaust. Lá það þarna yfir línu sinni og hafði ekki vél í gangi. Sigfús stýrimaður sló strax af, og Guðmundur skipstjóri kom á stjómpall. Skipið, sem varð fyrir ásiglingunni, tók nú að sökkva. Kópur hafði sig í námunda við það. Áliöfnin kom nú á björgunarbát sín- um róandi yfir til okkar. Vora þeir fáklæddir og höfðu sama og ekkert meðferðis. Allir höfðu þeir verið í kojum nema einn maður á verði, þeg- ar áreksturinn varð. Skipið sökk þama á nokkram mínútum. Þetta var norskur línuveiðari frá Álasundi og hét „Fausstína", timburskip byggt um aldamótin. Átti skipstjóri það hálft, en áhöfnin hinn helminginn. Norð- mennimir vora nærri búnir að fylla skipið og ætluðu að halda heim ein- hvem næstu daga. Við ásiglinguna missti Kópur annað akkerið stjórn- borðsmegin og rifnaði út úr klussinu. Forpikkurinn fylltist af sjó og var Kópur all framhlaðinn er hann kom til Hafnarfjarðar. Þar skildum við við Korðmennina, sem voru 17 að tölu. Sjópróf voru haldin inni í Reykjavík. Vissi ég ekki run niður- stöður þeirra. Eg tel víst að Kópur hafi sloppið, þar eð „Fausstina" var sama og ljóslaus. Bót var sett fyrir klussið á Kóp, og forpikkurinn tæmdur. Var svo haldið á veiðar á ný. Vertíðinni luk- um við án frekari tíðinda. Síðustu vertíðina var ég með Gúð- mundi á togaranum Kóp 1935. Sögu- legt við þá vertíð var það, að nærri var búið að taka okkur í landhelgi vestur undir Jökli, út af Lóndröngum. Brezkur togari var þar einnig að veiðum um daginn, í einu holinu tog- ar sá brezki yfir hjá okkur og flækt- ust trollin saman. Guðmundur lét hala inn vírana eins og spilið komst, hann vildi verða á undan Bretanum með trollið upp að borði, sem og tókst. Gekk nú skipshöfnin á Kóp í það með hörðum höndum að greiða hin óklára troll, og var Guðmundur skip- stjóri þar í lífið og sálin. Vindur var suðvestan stæður og rak okkur að landi. Þegar verið var að enda við að skilja trollin, kom danska varðskipið „Hvidbjömen" allt í einu að vestan. Skipti engum togum að hann skaut að okkur þremur lausum skotum. Komu svo menn af „Hvidbjömen“ um borð til okkar að skoða og hafa tal af skipstjóra. Guðmundur viðurkenndi að hann væri kominn inn í landhelgi vegna reka, og bar sá brezki það sama. Létu þeir dönsku það gott heita, en skip- uðu þeim að hafa sig strax á brott, er þeir mættu hreyfa skrúfu. Brezki togarinn hét „Lord Beaconsfield". Þegar trollin vora orðin klár var strax keyrt frá landi. Mörg orð voru sögð á Kóp tun þetta hafarí þama við jökulinn. Eftir þetta úthald leystist Kóps-út- gerðin upp. Þeir munu sennilega lítið hafa grætt Guðmundur og Páll, fremur en aðrir útgerðarmenn á þeim árum. En Ýmir gamli átti eftir að lenda í öðrum höndum og hlaut þá nafnið „Þorfinnur". Síðast var hann seldur til Færeyja, þetta góða skip, sem upphaflega var eign Hjalta Jónssonar og Ágústs Flygenring, smíðað úr þýzku herskipastáli í heimsstyrjöld- inni fyrri. * Vísur sendar Víkingnum frá ísafirði Vegleg oss er virðing gjörð þó vont sé fjárhagsástandið gáfuð þeysir glamurhjörð á gandreið yfir landið. Ei skal kvíða í ótíma en með huga skýrum Æðrulaus að útrýma öllum sníkjudýrum. Lífsins stríð þótt lami þrótt líka þrengist hagur rennur eftir næðingsnótt nýr og bjartur dagur. H. B. & Enginn eiginmaður getur orðið rík- ur nema konan hans leyfi honum það. i 235

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.