Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1966, Side 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1966, Side 12
John C. Edgar: KEÐJU I kassinn Arngrímur Guðjónsson þýddi. Lífið er oft undarlegt, en þó sjaldan eins og því er lýst í sögu- bókum. Ef svo væri, hefðu Ran- some og Le Brusse, þessi tvö leiðinlegu ruddamenni, drepið hvorn annan — eða kannski mig. En það var einmitt það, sem ekki gerðist. Þessvegna finnst mér eins og saga þessi sé sannari og rökréttari en ella hefði verið. Ég var háseti á gufuskipinu ROUMELIAN, og í júní árið 1921 fermdum við í Patras, Smyrna og öðrum grískum höfn- um þurrkaða ávaxti, sem fara áttu til Liverpool. Þegar við nálg- uðumst höfnina í Smyrna, þar sem leggja varð skut að bryggju, var bakborðsvaktin á hvalbakn- um, og háseti nokkur, Ransome að nafni, hóf að segja okkur frá því, þegar hann kom þangað síð- ast. Á þeim árum voru laumufar- þegar nokkuð algengir í grískum höfnum. Komu þeir um borð í skipin skömmu áður en þau sigldu og hurfu í hóp verkamannanna. Síðan laumuðu þeir sér undir hvalbakinn, venjulega óséðir. En oft komu þeir um borð með vín- flöskur og réttu að' hásetum og kyndurum. Ekki svo að skilja, að þeir væru velkomnir, en menn sáu í gegnum fingur sér við þá, þar sem þeir voru sjaldan lengur um borð en tvo sólarhringa. Flest- ir þessara manna töluðu ensku, og höfðu undantekningarlaust á- takanlega sögu að segja. Annað- hvort voru þeir á leið til aldraðra foreldra sinna eða heittelskandi eiginkvenna. Sennilegra er þó, að oftast hafi þeir verið að forða sér undan lögreglunni. En hver getur um það dæmt? Venjulega sagði þeim einhver, að ef þeir sæju yfirmann nálgast hvalbak- inn, yrðu þeir að lyfta hleranum af keðjukassanum, sem var undir hvalbaknum, skríða þar niður og láta hlerann í á eftir sér, og vera þar, þangað til þeim yrði gefið merki um, að þeir mættu koma upp aftur. Ransome var að segja okkur frá einum slíkum laumufarþega með sinni hrjúfu rödd. Þannig stóð á, að timburmaðurinn hafði á leið sinni fram á hvalbakinn komið við hjá þriðja vélstjóra, því loki á gufuröri þar þurfti at- hugunar við, áður en akkerið yrði látið falla. Þetta tók hann nokkurn tíma, en þegar hann kom aftur, gekk hann ákveðnum skref- um í átt að stjórnborðsstiganum, en þurfti á leið sinni þangað að fara framhjá hvalbakshurðinni. Laumufarþeginn, sem hélt að hann ætlaði inn í sjálfan hval- bakinn, brá skjótt við, lyfti hler- anum af keðjukassanum og stökk niður á keðjuna .Innan fimm mínútna var gefin skipun um að láta stjórnborðsakkerið falla. Þó orðaforði Ransomes væri takmarkaður og kryddaður ó- hefluðum blótsyrðum, missti saga hans ekkert af hryllingi sínum af þeim sökum. Ekki hafði heyrst neitt í Grikkjanum, en stýrimað- urinn, sem hallaði sér að borð- stokknum, hafði fyrstur orðið var við það, sem var að ske, þegar hlutar úr mannslíkama komu framan í hann. Og í þann mund, að augað úr fórnarlambinu hrökk í Ransome sjálfan, hafði stýri- maðurinn þrifið sjóslönguna af honum og bunað yfir höfuð sitt, misst húfuna í sjóinn, og slagað því næst eins og drukkinn maður niður af hvalbaknum. „Og urðu þetta endalok Grikkja- fjandans,“ lauk Ransome frá- sögn sinni. Á bakborðsvaktinni voru auk Ransomes franskur Kanadamað- ur, sem hét Le Brusse, maður frá Welsh að nafni Owens, og svo ég. Ekki verður sagt, að við létum okkur allt fyrir brjósti brenna, enda séð ýmsa hluti hroðalega í stríðinu. En ruddalegur frásagn- armáti Ransomes var þó slíkur, að okkur Owens stóð ekki á sama. En Le Brusse hló bara og sagði: „Svo herra stýrimaðurinn gat ekki þolað þetta, huh? Einu sinni, þegar ég var í skógarhögginu, féll sextíu feta hátt tré í öfuga átt — þau gera það stundum — og áður en mannskapurinn gat forðað sér hafði það kramið þrjá þeirra í sundur eins og flugur. Þú hefðir átt að sjá blóðbaðið það.“ Til allrar hamingju var hróp- að: „Látið fara bæði akkeri,“ svo endalok sögunnar drukknaði í hávaðanum. Eftir þetta urðu þeir Ransome og Le Brusse hinir mestu mátar, og létum við hinir þá alveg af- skiptalausa. Ransome var gríðar- VÍKINGUR 230

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.