Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1966, Side 13

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1966, Side 13
Dollan rann úr hendinni og datt niöur sem blýlóS. stór spjátrungur frá Liverpool, sex fet og tveir þumlungar á hæð, og hafði unun af því að nota hnefana á sér minni menn. Aft- ur á móti hafði Le Brusse glæsi- lega vöðva, sem stutt gátu þá full- yrðingu hans, að hann hefði ver- ið skógarhöggsmaður. Skrokkur- inn var vel byggður og útlimirn- ir eins og þeir trjábolir, sem hann gortaði af að hafa fellt. Hann var um það bil fimm fet og tíu þuml- ungar á hæð og var jötunsterkur. Samt var hausinn á honum alltof lítill samanborið við bolinn, og eyðilagði það gjörsamlega sam- ræmi vaxtarlagsins. Báðir voru þeir nautslegir, en eins og margir sem þannig eru gerðir, voru þeir í hjarta sínu hinar mestu rag- geitur. Og vinir voru þeir ein- ungis vegna þess, að þeir hrædd- ust hvor annan. Að lokum kom ROUMELIAN til Liverpool og við vorum af- skráðir. Það var nokkuð löngu seinna, ég var búinn að vera á tveim öðr- um skipum í millitíðinni, að ég dag nokkurn kom á skrifstofu út- gerðarinnar og hafði næstum rekist á mann, sem gekk öfugur út úr dyrunum og fullvissaði ein- hvern fyrir innan, „að hann mundi ná í einn eftir andartak.“ Þegar hann snéri sér við, þekkti ég hann. „Halló,“ sagði hann, „þú ert einmitt svarið við því, sem ég var að óska mér.“ Ég hafði áður siglt með honum á nokkrum skip- um, þá öðrum stýrimanni, en nú sagði hann mér, að hann væri orðinn fyrsti stýrimaður á gufu- skipinu AUSTRALIAN og vant- aði háseta. Ef ég kærði mig um, þá væri plássið mitt. Ég lét ráðn- ingarstjórann skrá mig, og þeg- ar hann hafði lokið því, sagði hann stuttur í spuna: „Skipið liggur í Langtondokkunum og þú átt að mæta til skips klukkan átta í fyrramálið." Síðan flýtti hann sér burtu. Til allrar óhamingju var áhöfnin farin af skrifstof- unni, þegar ég kom þangað, svo ég sá ekki hina væntanlegu skips- félaga mína. Klukkan hálfátta morguninn VÍKINGUR eftir kom ég um borð. Skipið var nokkuð við aldur, hafði verið eitt af fyrstu skipum Papayanni lín- unnar, og hvalbakurinn lítill. Lúkarinn var rétt nógu stór til að rúma átta kojur og eitt borð og var mannlaus, þegar ég kom. Ég valdi mér efri koju nálægt einu kýrauganna, henti úr henni „asnamatnum,“ sem útgerðin hafði látið í té, og lét í hans stað uppblásna gúmmídýnu, fór í vinnuföt og var tilbúinn til vinnu þegar hún hæfist klukkan átta. Þá heyrði ég fótatak, sem gaf til kynna að skipshöfnin væri að koma, og meðal óljósra raddanna þekkti ég tvær, sem ég hefði ekki óskað eftir að heyra — raddir Le Brusse og Ransome. Ég heilsaði þeim ekki, en Le Brusse, háværari en nokkru sinni fyrr, grenjaði: „Ranny, sjáðu hver er hérna. Shorty frá ROU- MELIAN.“ Ég var aðeins fimm fet og tveir á hæð, svo nafngiftin var hvorki illa til fundin né ný. Þó hafði hann aldrei, allan tímann, sem við sigldum saman á ROU- MELIAN, notað þetta uppnefni. Ég sá þó brátt, hversvegna hann leyfði sér þetta nú, því hann fór inn í herbergi bátsmannsins. Á meðan þessu fór fram gekk Ransome inn í lúkarinn, athug- 231

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.