Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1966, Blaðsíða 16
Risastórt „fiskabúf
tiL sítdarrannsókna í FjeldspoLLen
v/ð Bergen
Ég heyrði ógreinileg köll uppi
yfir mér, og án allrar viðvörunar
byrjaði keðjan að renna út aftur
og jók hraðann með hverju
augnabliki sem leið.
öll atriði hinnar hræðilegu
sögu Ransomes flugu í gegnum
hug minn, og ég dó þúsund sinn-
um á örfáum andartökum. Mér
fannst líkaminn tætast í sundur
og ég mundi jafnvel það, þegar
augað flaug í hann.
Einhvernveginn hefur heili
minn haldið áfram að starfa. Ég
hafði þó engin tök á því að ná til
stigans, svo að í hvert skipti og
bugt dróst upp í rörið, stökk ég
upp, þegar hún kipptist undan
fótum mínum. Kassinn fylltist af
ryði og ryki og hávaðinn tók á
taugarnar. Aftur og aftur stökk
ég undan keðjunni, og hefur eng-
inn maður þurfti að „sippa“ af
jafn mikilli örvæntingu og ég
gerði þarna.
En þá hlýtur einn hlekkurinn
að hafa þrifið krókinn úr hendi
minni, því hann hentist upp í
rörið og kengbognaði. Tveir eða
þrír hlekkir flæktust í rörinu og
eitt andartak stöðvaðist æðis-
gengin rás keðjunnar. Frávita
hentist ég til stigans og dróst
upp á kassabrúnina. Ég skalf
eins og hrísla og seldi upp. Þann-
ig brást líkaminn við þeim ótta,
sem greip mig, er ég hafði staðið
andspænis óvæntum og ógurleg-
um dauðdaga. 1 undirmeðvitund-
inni varð ég var við, að einhver
skreiddist inn í hvalbakinn og ég
heyrði hása og óttaslegna rödd
segja:
„Shorty, í guðsbænum, ertu ó-
meiddur?“ Ég leit upp og sá
öskugrátt andlit bátsmannsins.
Ég gat engu orði stunið upp, svo
ég kinkaði kolli. Þá hneig báts-
maðurinn meðvitundarlaus niður,
og hefi ég aldrei séð neinn jafn
steindauðan í því ásigkomulagi.
(Úr Seaman and the Sea.
Þýð. Arngr. Guðjónsson).
Álrvörðun um þetta verður
væntanlega tekin á alþjóð-
legri ráðstefnu í Kaupmanna-
höfn I október í haust.
Nefnd Sérfræðinga, tilnefnd af
alþjóða hafrannsóknarráðinu
ICES (International Council for
the Exploration of the Sea), hef-
ir nú um f j ögurra ára skeið fram-
kvæmt rannsóknir á smáf jörðum,
sem til greina gætu komið sem
heppilegt „fiskabúr“ frá náttúr-
unnar hendi.
Áhugi nefndarinnar beinist að
Fjeldspollen, vegna hinna góðu
skilyrða, sem þar eru, en í þess-
um smáfirði heldur sig staðbund-
inn síldarstofn, sem gefur tæki-
færi til rannsókna árið um kring,
við mismunandi aðstæður og auð-
velt verður að loka honum tii
ýtarlegra rannsókna.
Hinn þekkti norski haffræðing-
ur Finn Devold hefir nýlega skýrt
norskum blöðum svo frá, að fram-
kvæmdir við þetta risafiskasafn
muni væntanlega hefjast í náinni
framtíð.
Ein veigamikil ástæða fyrir
því, að Fjelspollen er mjög nær-
tækur til rannsóknanna er, að
hann liggur svo nálægt Hafrann-
sóknarstofnuninni í Bergen, en
þar hafa síldarrannsóknir verið
framkvæmdar í búrum um langt
skeið.
Ef Fjeldspollen verður valinn
sem rannsóknarstöð, eins og sér-
fræðinganefndin leggur áherzlu
á, mun verða leitað fjárhagslegs
stuðnings úr rannsóknarsjóðum
hmna ýmsu fiskveiðiþjóða, sem
aðilar eru að ICES.
Devold telur nauðsynlegt í hin-
um væntanlegu áætlunum, að
reisa sérstaka tilraunastöð við
Fjeldspollen, þar sem vísinda-
menn frá ýmsum löndum geta
fengið aðstöðu til að framkvæma
sjálfstæðar athuganir.
Þá geti í framtíðinni risið upp
alþjóða rannsóknarmiðstöð í ná-
grenni hinnar þekktu rannsókn-
arstöðvar í Bergen og mundu þá
skapast möguleikar til sam-
ræmdra rannsókna.
Frumkostnaður við slíka stofn-
un mundi verða um 3 millj. ísl.
króna.
Raiinsóknarslnrfið verónr
anðveldnra.
Aðaltilgangurinn með þessu al-
þjóðlega samstarfi um síldar-
rannsóknir, verður að auðvelda
hnitmiðaða starfshætti, sem eng-
in tök eru á að beita á hafi úti.
í slíkri innfjarðar fiskistöð,
sem hér um ræðir með staðbund-
inn síldarstofn, munu þeir, er við
síldarrannsóknir fást, fá einstakt
tækifæri til að afla sér sérstakra
upplýsinga um síldarmagn, og
komast að niðurstöðu um hvað
liggur til grundvallar fyrir miklu
magni og viðkomu nýrra árganga
og hið gagnstæða.
Fiskifræðingar vita nú þegar
allmikið um ferðir síldarinnar og
ýmis fyrirbrigði þar að lútandi,
en nærtækar athuganir á lífshátt-
um síldarinnar hafa hingað til
byggst á nokkrum síldum í fáein-
um fermetra fiskabúrum hjá
nokkrum fiskiveiðiþjóðum.
Mörjí rnnnsóknnrverketni.
Með þeim skilyrðum sem
Fjeldspollen hefir uppá að bjóða,
veitast vísindamönnum áður ó-
þekkt tækifæri til að auka þekk-
VÍKINGUR
234