Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1979, Blaðsíða 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1979, Blaðsíða 25
Einar Jónsson, fiskifræöingur: Um „íslensk” sjó- og fiskikort í fyrri grein minni var saga ís- lenskra sjómælinga dregin saman í örstuttu máli og því ófremdar- ástandi er ríkir í þessum efnum í dag lýst að nokkru, en ótrúlegs dáðleysis hefur gætt á þessu sviði, sem dregur víst dám af almennum doða og áhugaleysi er hér gætir í þessum efnum. Ékki var búið að gera öðru skil en sjókortum í fyrri grein, en nú skal vikið að fiski- kortum. I fljótu bragði virðist þessi hlið málanna varla efni í heila grein, því eftir því sem ég kemst næst við lauslega athugun, hafa einungis verið gefin út tvö fiskikort af Sjó- mælingum íslands. Forstjóri Sjó- mælinganna segir eftirfarandi um slíka útgáfu í Víkingsgrein, er áður var til vitnað (3. tbl., ’73): „Útgáfa svokallaðra fiskikorta er krafa fiskimanna, en fram að þessu hefur ekki verið hægt að sinna þessu verkefni sem skyldi, vegna mannfæðar við kortagerð og skorts á upplýsingum um sjáv- arbotninn.“ En þótt þáttur landsmanna sjálfra í fiskikortagerð sé rýr koma hér við sögu sem fyrr aðrir en við sjálfir, og saga slíkrar kortagerðar hér við land er sennilega orðin nær jafngömul og elstu sjókort, en þar eiga útlendingar að sjálfsögðu hlut að máli. Þannig munu kort sem Frakkar og Hollendingar gerðu af miðum sínum hér við land jafnframt hafa innihaldið upplýsingar, sem telja má til eig- inda fiskikorta, þótt ófullkomin hafi verið. Bretar, sem stærstan VÍKINGUR þátt hafa átt í „íslenskri“ sjó- kortagerð að frátöldum Dönum og landsmönnum sjálfum, tóku og snemma við sér í þessum efnum. Mjög snemma eftir að Danir höfðu lokið við að kortleggja landgrunnið og fiskislóðir um og eftir fyrsta áratug aldarinnar, fóru Bretar að færa upplýsingar inn í þessi kort sem gátu orðið fiski- mönnum að gagni, en þeir voru þá farnir að venja komur sínar hing- að á togskipum. Breskir einkaað- ilar tengdir togaraútgerðinni létu gera fiskikort af ýmsum miðum hér við land og síðar fór breska fiskifélagið — „British Whitefish Authority" — að gera hið sama; Kingfisher kortin. Upplýsingar voru keyptar af gamalreyndum togaraskipstjórum og þær færðar inn á sjókort, þannig að allar þekktar upplýsingar um botngerð á slóðinni var hægt að lesa af einu korti, þ.e. fiskikorti. í þessi kort voru ekki eingöngu færð inn auð- kenni um togbotninn, gerð hans, festur, klakka og skipsflök, heldur og stundum upplýsingar um fiski- sæld svæða eða bletta svo og hvenær (mánuðir, árstími) fiski- gengdar væri þar helst að vænta. Síðastnefndu upplýsingarnar hafa eflaust getað verið gagnlegar framandi sjómönnum, en heldur finnst manni sá skipstjórnarmað- ur græningjalegur, sem yrði að lesa sér til í kortum, hvar fiskjar væri að vænta. Slíkar upplýsingar um fiskigengd, stað og tíma, geta reynst næsta forgengilegar nema í víðara samhengi séu, enda vart Einar .lónsson. Önnur grein færðar inn á fiskikort lengur, a.m.k. ekki í smáatriðum eins og oft var gert fyrrum. En eftir blíva hinar lítt umbreytanlegu upplýs- ingar um togbotninn sem eru hverjum skipstjórnarmanni bráð- nauðsynlegar í hvert sinn er hann setur botntækt veiðarfæri í sjó. íslenska landgrunnið innan 200 m dýptarlínunnar þar sem meira en 90% af öllum okkar fiskveiðum hafa löngum farið fram, er mjög misjafnlega fallið til botnvörpu- veiða svo dæmi sé tekið um þetta algengasta botntæka veiðitæki. 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.