Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1979, Blaðsíða 49

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1979, Blaðsíða 49
Skólaskip fyrir Kúbu Mörg lönd, einkum þróunar- löndin, búa við skort á sjómönn- um, það er að segja yfirmönnum og vönum starfsmönnum til þess að manna skipaflota sinn, sem oftast er líka smærri en tilefni eru til. Sjómannaskólinn á hafinu íslendingar hafa leyst þetta mál með sérstökum stýrimannaskóla, vélskóla og matsveinaskóla, og þótt á stundum gangi brösótt með mannaráðningar og hvimleiðar undanþágur séu oft í gildi, verður því varla í alvöru haldið fram að hér sé skortur á hæfum sjómönn- um — þótt annað mál sé auðvitað það hvort útgerðarfyrirtækin séu ávallt reiðubúin til að greiða það sem þarf.fyrir þjálfaða og mennt- aða starfsmenn. Erlendis færist það nú í vöxt að stór skipafélög, og þá einkum þar sem skipin eru ríkiseign, reyni að færa sjómannafræðsluna út á hafið. Það er gömul aðferð að senda liðsforingjaefni á sérstökum seglskipum út um heiminn, því enn er það svo, að margir telja að raunveruleg sjómennska sé og verði aðeins stunduð á seglskip- um. Það eru einkum liðsforingja- efni flotans sem fá slík tækifæri til þjálfunar, aðrir sjómenn fara í sjómannaskóla, vélskóla, eða stýrimannaskóla og þá oftast eftir einhverja reynslu á hafinu við störf á þilfari, í vél eða í eldhúsi skipa. Nú reyna menn að sameina þetta með því að smíða sérstök skólaskip, þar sem bókleg og verkleg kennsla fer fram á hafinu. Skipið er raunverulegt flutninga- VÍKINGUR skip, sem vinnur fyrir peningum, því það flytur vörur milli hafna, og þarna fá nemendur alla ken- nslu, verklega og bóklega við þær aðstæður, sem þeir síðan vinna við á sjónum. Skólaskipið Jose Marti Skólaskip að nafni JOSE MARTI var nýverið smíðað í Danmörku fyrir stjórnina á Kúbu. Ástæðan til þess að leitað var til Danmerkur með þetta verkefni mun einkum vera sú, að Danir hafa talsverða reynslu í þessum efnum. Laurentzen skipafélagið hefur um margra ára skeið bæði rekið sjómannaskóla í landi og ennfremur haft nemendur og kennara um borð í hinum þekktu kæliskipum sínum, sem sigla um öll heimsins höf. Kúbanska skipið heitir eftir frægum þjóðernissinna á Kúbu, og um borð í skipinu er rými fyrir 300 manns, þar af um 200 nem- endur. Gert er ráð fyrir að 30 kennarar starfi um borð í skipinu, en alls telur sjálf „áhöfnin“ 63 menn. í skipinu eru kennslustofur, rannsóknastofur, vinnustofur og annað, sem nauðsynlegt er að hafa í sjómannaskóla og svo hafa þeir auðvitað allt skipið þar ofan í kaupin. í skipinu er sérstakt vélarrúm fyrir nemendur, þar sem alla hluti er að finna, ljósavélar, dælur og rafkerfi, — allt nema sjálfa aðalvélina, því ekki mun hafa verið talið óhætt að láta nemendur tæta of mikið í sjálfu vélarrúmi skipsins, því það gæti auðvitað haft slæmar afleiðingar. Mjög góð aðstaða er fyrir nem- endur á stjórnpalli, en þar hafa þeir allt til siglingafræði og skipið hefur sérstaka stöð til fjarskipta, þar sem unnt er að kenna loft- skeytafræði. En auk þessa hefur skipið 15.300 rúmmetra lestar- rými og fjórar lestar. Er gert ráð fyrir að skipið sigli sem venjulegt vöruflutningaskip og starfi sem 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.