Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1979, Side 48
þunganum er ekið um borð, má
stykkið vega 1000 tonn.
Það er fyrirtækið MacGregor,
sem hannað hefur og smíðað þil-
farslúgur, akstursbrú og fl. og þola
þilfarslúgurnar geysilegan þunga,
og eru bómurnar notaðar við að
hagræða hinum sex flekum, sem
loka lestum skipsins.
Bómurnar geta hvor um sig lyft
350 tonna þunga við 30° halla
miðað við láréttan flöt, en 400
tonnum við 45° halla, og saman
lyfta þær því 800 tonna þunga.
Ekkert skip er vitað um í heim-
inum, sem getur lyft öðrum eins
þunga og GLORIA VIRENTI-
UM.
DDG HANSA
Nýlega var hleypt af stokkun-
um í Bremen, þungaflutninga-
skipinu STAHLECK, en það er
DDG HANSA útgerðin, sem á
þetta skip, en það sérhæfir sig m.a.
í sérhönnuðum þungaflutninga-
skipum.
Hið nýja skip er með Mac-
Gregor landbrú og lúgum, en
deildir fyrirtækisins í Þýskalandi
sáu um hönnun og smíðar.
Hið nýja skip opnar stefnið og
brúin er sett á land, en hún getur
tekið 1000 tonna þung í einu lagi,
en landbrúin ein vegur 40 lestir.
Vatnspumpum er beitt við að
opna og loka stefninu. Að aftan er
minni landbrú, sem ber 80 tonn,
en henni er ætlað að vera út-
gönguleið fyrir dráttarvagna, sem
aka þunganum um borð.
Skipið getur híft um borð og
losað 432 tonna þunga í einu lagi.
Þrátt fyrir bómurnar, þá er
þunginn í lestunum aðeins einn
metra frá miðlínu, en lúguopið er
41 metra langt og 9 metra breitt.
Er lestinni lokað með 13 sér-
byggðum lúgum.
Skipið hefur tvo lyftikrana,
einsog sjá má myndinni.
Tvö skip af þessari gerð, hafa
verið pöntuð til Bandaríkjanna.
Munu skipin sigla undir
bandarískum fána, og sinna verk
efnum bæði heima og á alþjóð
legum markaði.
STAHLECK opnar stefnið og skýtur landbrú á bryggjuna og þá má aka 1000
tonna stykkjum um borð, en dráttarvagninn sleppur síðan út um skutinn.
48
VÍKINGUR