Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1979, Side 50
slíkt, með nemendurna og kenn-
arana um borð.
Skipið er 150 metra langt, 21
metra breitt og er 12.800 DW.
Það gengur 16.7 hnúta.
Á myndinni sjáum við Jose
Marti á fullri ferð í reynslusigl-
ingunni, en seglskipið er skólaskip
Laurentzenlínunnar, þar sem sjó-
mannsefni við sjómannaskóla fá
ákveðinn hluta þjálfunar sinnar.
Víkingurinn hefur áður litillega
minnst á þetta skip (Jose Marti),
en þá höfðum við ekki eins miklar
upplýsingar og núna, en við urð-
um þess varir, að áhugi var fyrir
að vita meira um þessi stóru
skólaskip þjóðanna.
Þá getum við einnig upplýst að
fleiri þjóðir hafa pantað svipuð
skip, til dæmis Iranir, en á sigl-
ingamáli eru þau nefnd
Cargo/training ships, og fjögur
verða smíðuð af þessari gerð til
viðbótar, og öll fara þau til fjar-
lægra landa, þar sem þeirra bíður
það hlutskipti að þjálfa sjómenn
þjóða, þar sem skortur er á
menntuðum og hæfum farmönn-
um.
Bílferja
milli Barcelóna
og Ibiza
1. júní sl. hóf Ybarra skipafélagið
daglegar siglingar með farþega og bíla
frá Barceiona til Ibiza og ennfremur
til Mallorca. Fargjaldið er 78 DM
fyrir manninn og 131 DM fyrir bílinn
og eru fjögurra manna kiefar í skip-
unum. Bókað er í þessar ferðir í öilum
DER ferðaskrifstofum í Þýskalandi
og þetta ættu íslenskir, akandi ferða-
menn að athuga ef þeir hyggja á Mið-
jarðarhafsferð.
Þá má vekja athygli á ferjuferðum
milli Genoa og Barcelona, en þær eru
þrjár á viku og kostar 92 DM fyrir
manninn á þeirri leið og 110 DM fyrir
bílinn.
Nýr norskur
björgunarbátur
Þekkt norskt fyrirtæki hefur nú
sent á markað nýjan björgunar-
bát, sem hlotið hefur staðfestingu
yfirvalda, eða norsku siglinga-
málastofnunarinnar.
Bátur þessi er hinn nýstárlegasti
og miklar kröfur eru gerðar til
hans. Hann er vélknúinn og er
hann ekki með venjulega skrúfu,
heldur öllu heldur dælu, því hætta
gæti verið á slysum á fólki ef
venjuleg skipsskrúfa væri notuð.
Báturinn er búinn sérstökum
„þybbum“, til að verja hann ef
hann rekst á, t.d. við skipshlið í
veltingi.
Farþegar, eða skipbrotsmenn
hafa sérstök bólstruð sæti og ör-
yggisbelti, svipuð og notuð eru í
bifreiðar, en það getur komið að
góðu haldi í stormi og stórsjó.
Bátur þessi hefur verið þraut-
reyndur og meðal annars hefur
hann verið látinn rekast á stein-
vegg með hraða sem er 5 m á sek-
úndu, (18 km hraði) og þoldi bát-
urinn það án skemmda.
Erfið
grásleppuvertíð
Það sem af er sumri hefur
Sjávarútvegsráðuneytið gefið út
507 leyfi til grásleppuveiða á
þessu ári. Þótt einhverjar beiðnir
um veiðileyfi eigi eftir að berast,
er víst að um er að ræða fækkun
frá fyrra ári, en þá voru þau 618.
Leyfin í ár skiptast þannig á
veiðisvæði. Veiðitímabil eru
einnig tilgreind:
Suður- og Vesturland (Hvíting-
ar-Horn): 236 leyfi; 18. apríl —
17. júlí.
Norðvesturland (Horn —
Skagatá): 66 leyfi; 1. apríl — 30.
júní.
Norðausturland (Skagatá —
Fontur: 159 leyfi; 10. mars — 8.
júní.
Austurland (Fontur — Hvít-
ingar): 46 leyfi; 20. mars — 18.
júní.
Hafís hefur í ár hamlað mjög
veiðum fyrir Norðurlandi og
norðanverðu Austurlandi, og þar
sem ástandið hefur verið verst á
Norðausturlandi og norðanverð-
um Austfjörðum, var vertíð ekki
hafin þegar þetta var ritað (30.
apríl).
í fyrra voru flutt út 1398 tonn af
söltuðum grásleppuhrognum og
81 tonn fór í niðurlagningu, en
búast má við að aflinn verði minni
í ár.
50
VÍKINGUR