Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1980, Page 47
Mynd 2: Torfulóðningar á smokkfiski í Djúpinu á miðjum degi (6. 10.) Togferð, 38 KHz,
sendist. 6.
menn vissu ekki nógu gjörla hvar
trollið var í sjónum. Hlerar
reyndust of þungir þannig að
trollið opnaðist ekki nógu vel.
Toghraði var frá 2,6—3,5
sjm/klst., sem kann að hafa verið
of mikið. Smokkfiskafli varð eng-
inn í þessari tilraun.
Tilraun á skuttogara
Áður en tilraunin á Elínu Þor-
bjarnardóttur fór fram veltu menn
því fyrir sér, hvernig flottroll væri
heppilegast að nota. Ekki var í
rauninni úr mörgu að velja hvað
varðaði troll og möskvastærð.
Upplýsingar um þetta atriði liggja
ekki beinlínis á glámbekk, en
nokkrar teikningar fundust af
smokkfiskatrollum (allt botntroll)
sem höfðu þetta 100—150—200
mm möskva í vængjum og síðan
smækkandi niður í 50—60 mm í
Mynd 1: Lóðningar (á togferð) í ísafjarð-
ardjúpi að kvöldi 5. 10. 1979. 38 KHz,
sendist. 6. a) sntokkfiskur (?), b) Ijósáta og
loðnuseiði (?), c) þorskur (?).
poka. 1 riti einu fullyrtu helstu
smokkfiskasérfræðingar heims að
fiskurinn smalaðist illa undan
stórum möskva. Því virtist til-
gangslaust að nota stóru flotfiski-
trollin sem til eru um borð í tog-
urum með möskvum í vængjum
sem smáhvalir gætu leikið sér að
fara í gegnum.
Ákveðið var að reyna að toga
fyrir smokkfiskinn með svoköll-
uðu loðnutrolli. Trollið sem var í
eigu Hafrannsóknarstofnunar er
flottroll, sem settur hafði verið í
poki með 20 mm möskvum og
hafði verið notað til þess að toga
fyrir þorskfiskaungviði í svo-
nefndum seiðaathugunum.
Möskvastærð trollsins var annars
200 mm í vængjum og 60 mm aft-
ast í belg; höfuðlína 48 m. Trollið
var dregið með 2,5 til 3 sjm/klst.
hraða.
Þegar tilraunirnar hófust fram
af Arnarnesinu (í Isafjarðardjúpi)
að kvöldi 5. október lóðaði vel á
smokkfiski á köflum (mynd 1) og
stór floti Ijósumskreyttra báta var
á Djúpinu sem drógu smokk í gríð
og erg, þannig að sjó- og blekgus-
ur stóðu í allar áttir. Að sögn
sjómanna var smokkurinn mest á
3—4 föðmum og afli á bát eftir
nóttina sagður um 600 kg. Togað
var um svæðið alla nóttina við og
innan um bátaflotann og er
skemmst frá því að segja, að
smokkfiskaflinn var aðeins fáeinir
ánetjaðir smokkfiskar. Þegar leið
á næsta dag þéttist smokkfiskur-
inn í geysistórar torfur, sjá mynd
2. Þótt trollinu væri miðað ná-
kvæmlega með höfuðlínumæli á
þessar torfur varð árangur engu
betri en verið hafði um nótt-
ina. Af öðrum afla, sem vart varð
VÍKINGUR
47