Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1980, Side 54
eins það sem áður var nefnt í
sambandi við blöðruþangið, þá
vaknar sú spurning hvort ekki
væri heppilegra að meta gæði
þangsins í hvert sinn og láta það
hafa áhrif á verð þess líkt og við
fiskveiðar.
Þegar búið er að fylla skipið eða
taka það sem til er hjá flokknum
af þangi, afgreiða tóm net, vara-
hluti eða viktarnótur frá fyrri
ferðum og skýrslur flokkstjóra um
skurðinn (en um þessa hluti alla
erum við tengiliðir við fyrirtækið)
er létt akkerum og haldið heim.
Lestun skipsins getur tekið
mjög mislangan tíma eða frá
3—12 stundir, og fer hann eftir því
hvað trossurnar eru greiðar og
einnig hvort eitthvað þarf að bíða
eftir að flokkurinn geti dregið þær
allar að skipshlið, en þangtrossur
eru mjög seindregnar jafnvel fá
net. Af þessu sést að ferðin getur
tekið allt að 20 tíma.
Mjög gaman er að sigla um
Breiðafjörðinn, virða fyrir sér
hinar margbreytilegustu eyjar og
sker og ekki síst fjölskrúðugt
dýralífið, ótölulegan grúa fugla af
öllum tegundum, einnig selina,
sem eru hér um allt í stórum hóp-
um.
Við tökum því undir orð Jökuls
Jakobssonar. „Breiðafjarðareyjar
verða um ókominn aldur eins-
konar þjóðgarður Drottins og
þangað munu leita pílagrímar úr
skarkala heimsins, undan gný
túrbínunnar, ofbirtu ljósaskilt-
anna, æranda auglýsingaskrums,
urgi gírkassans og ysi þjóðfélags-
ins. í þessum þjóðgarði gefst
mönnum kostur á að horfast í
augu við selinn í sjónum í stað
þess að láta sjónvarpið horfa á sig
í stofunni sinni kvöld eftir kvöld, í
þessum garði verður fuglinn vinur
mannsins, þegar hann er hættur
að trúa á kosningaloforð heims-
ins.“
Þegar svo komið er að bryggju
er oftast mættur þar löndunar-
flokkur verksmiðjunnar, en við
skipshöfnin þurfum ekki að vinna
við hana og eigum því oftast frí á
meðan, nema eitthvað hafi bilað
um borð, sem þarf að lagfæra fyrir
næstu ferð, en þá verðum við vél-
stjórarnir að sjá um að laga það.
En sem betur fer er ekki mikið um
það.
Þannig gengur vinnan í stórum
dráttum, að vísu alltaf með smá
breytingum allt sumarið fram á
haust. Þangskurðinum er oftast
hætt í október. Þá byrjar nýr þátt-
ur í starfseminni eða þaraöflunin,
sem stendur til jóla. Sú planta sem
við sækjumst þá eftir er svo
nefndur hrossaþari (Laminaria
digitata) og vex á 3—10 metra
dýpi og verður allt að 8 metra há.
Er hennar aflað með sérstakri kló
sem dregin er á eftir Karlsey og
mætti rita aðra grein um hvemig
sú vinna gengur, en það verður
ekki gert að sinni.
Enginvettfingatök
Rauðu MAX VINYLglófamir eru ðll véttlingatök.
með grófri kmmpáferð. Um endinguna vitna þeir sem nota þá.
Hún auðveldar erfið störf og útilokar
MAXf Rauðu MAX VINYLglófamir.
Heildsölubirgóir og dreifing Davk) S. Jónsson og Co. hf. S 24333.
54
VÍKINGUR