Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1982, Blaðsíða 14
jafnan með stóran lager af þessum
tækjum.
„Við erum hér í 500 fermetra
húsnæði, og nú síðustu ár höfum
við séð nokkuð um vilhald á raf-
mótorum í flutningaskipum, það
er að segja eftir að íslenski síldar-
flotinn hvarf héðan. Um tíma
vann ég mjög mikið í íslenskum
skipum og eitt árið kom 70% af
veltunni vegna viðgerða í íslenska
síldarflotanum, en hér voru oft 30
til 40 íslensk skip í einu. Mér
fannst alla tíð gott að skipta við
íslendinga og vildi gjarnan fá þá í
viðskipti aftur, þótt ég viti að það
verður aldrei í sama mæli og áð-
ur.“
Gera skemmd skrúfublöð
sem ný
Stærsta viðgerðarverkstæðið í
Hirtshals nefnist A/S Ove Christ-
ensen og þar tókum við tali Jörn
Engström framkvæmdastjóra.
Hann sagði í upphafi að eitt aðal-
verkefni þeirra um þessar mundir
væri að gera við skemmd skrúfu-
blöð. „Það breytir engu hvernig
blöðin eru farin. Sum koma til
okkar þannig að helmingurinn
hefur brotnað af, en við getum
gert þau sem ný og er kostnaður-
inn við það aðeins 20 til 25% af því
sem ný skrúfublöð myndu kosta.
Hægt er að gera við skrúfublöðin á
einum til íveimur dögum, en oft
þarf að bíða í vikur og mánuð eftir
nýjum skrúfublöðum. Sama ger-
um við við skrúfuöxla ef þeir hafa
skemmst af einhverjum orsökum,
þá gerum við þá sem nýja. Und-
anfarin 2 ár hafa 1000 skrúfublöð
verið endurnýjuð hjá okkur.“
Vélaverkstæði Ove Christensen
er rótgróið fyrirtæki og vélavið-
gerðir hafa verið aðalverkefni fyr-
irtækisins frá upphafi. Fyrirtækið
er umboðsaðili MAN- B&W-Alpa
í Hirtshals, en þó svo sé, gera
starfsmenn þess við allar tegundir
véla. Þá er fyrirtækið með umboð
fyrir Triplex kraftblakkirnar og
Rannsóknarskipið Western Europa frá George Town í S-Afríku var í þurrkví í Hirtshals
þegar Víkingur var þar á ferð.
Denis Kastrup skipaverkfræðingur.
nótaleggjarana, en þeir eru nú
komnir í svo til öll dönsku nóta-
veiðiskipin. Nú starfa um 100
manns hjá fyrirtækinu og hefur
svipaður mannafjöldi verið hjá því
um árabil.
Trébátarnir hverfa
smátt og smátt
Til skamms tíma var Hans
Svendsen skibsbyggeri stærsta
skipasmíðastöðin í Hirtshals og að
sögn forstjórans Hans Svendsen
þá vinna nú um 50 manns hjá fyr-
irtækinu. Um árabil byggði stöðin
mikið af trebátum, auk þess sem
hún annaðist viðgerðir á þeim.
Trébátarnir eru nú smámsaman
að detta út og í þeirra stað koma
smábátar. „Við erum nú með einn
stálbát í byggingu, sem við mun-
um ljuka við á næsta ári. Sá bátur
er aðeins um 20 tonn, reyndar
samkvæmt nýju alþjóðamæling-
unum,“ segir Svensen. Hann segir
ennfremur, að stöðin annist við-
hald á fjölda sænskra báta einkum
yfir sumartímann, en þeir í landi
í Hirtshals. „Við erum með tvo
slippa, annar tekur báta að 60
tonnum og þar eru stæði fyrir 5
báta. Hinn tekur báta upp að 200
tonnum og þar eru 4 stæði.“
Hans Svendsen sagði, að þegar
þeir væru með viðgerðir á stærri
skipum eða bátum, þá hefðu þeir
aðgang að þurrkvínni hjá Hirts-
hals Værft. Þá mætti benda á að
þeir væru með svo til alla þá
þjónustu sem menn þyrftu á að
halda, eins og til dæmis sand-
14
VÍKINGUR