Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1983, Side 15
Vélaverkstæði Sigurðar Sveinbjörnssonar:
Togyindur og annar dekkbúnaöur
Vélaverkstæði Sigurðar Svein-
björnssonar hf. í Garðabæ, var með
bás á sýningunni þar sem sýndar
voru ýmsar tegundir togvinda en
fyrirtækið hefur sérhæft sig í
framleiðslu á olíudrifnum togvind-
um og öðrum dekkbúnaði fyrir
fiskiskip. Fyrirtækið annast einnig
viðgerðir og endurbyggingu á eldri
viudum.
Sigurður Sveinbjörnsson stofn-
aði vélaverkstæði sitt árið 1946 en
hann er ennþá forstjóri þess þó
korninn sé á efri ár. Lengst af var
fyrirtækið til húsa að Skúlatúni 6, í
Reykjavík en árið 1969 var starf-
semin flutt í nýtt verksmiðjuhús-
næði að Arnarvogi í Garðabæ. Að
sögn Sigurðar var fyrsta húsið þar
300 fermetrar en var síðan stækk-
að í 600 og að lokum í 1200 fer-
metra.
Fyrst í stað voru verkefni fyrir-
tækisins aðallega viðgerðir en árið
1955 hófst samvinna við norska
fyrirtækið Hydrawinch og upp úr
því hófst framleiðsla á litlum tog-
vindum og öðrum vindubúnaði.
Síðan hefur fyrirtækið þróast og
vaxið við að smíða stöðugt stærri
vindur fyrir fiskiskip og hafa nú
verið framleiddar togvindur og
annar vindubúnaður í um 300 ís-
lensk fiskiskip á stærðarbilinu
12—300 rúmlestir.
Að sögn Sigurþórs Jónssonar,
yfirverkstjóra á vélaverkstæðinu,
eru verkefni þess að stærstum
hluta ýmis viðgerðaþjónusta við
skip hvaðanæva af landinu. T.d.
benti hann okkur á vindu sem var
að koma frá Eskifirði og togspil
fyrir troll úr 70 tonna báti frá
Olafsvík sem þeim hafði verið
sent. Viðgerðaþjónusta við hita-
veitur er einnig stór liður í starf-
semi verkstæðisins. Vegna hinna
VÍKINGUR
í bás Vélaverkstæðis Sigurðar Sveinbjörnssonar, f.v. Sigurþór Jónsson framkvæmda-
stjóri, Sigurður Sveinbjörnsson, stofnandi fyrirtækisins og forstjóri, Sveinbjörn Þormar
starfsmaðurá sýningunni, barnabarn Sigurðarog Þórir Ingvarsson tæknifræðingur. Fyrir
framan þá er splittvindan sem smíðuð er á verkstæðinu.
Pálmar Guðnason hefur unnið á vélaverk-
stæðinu í 22 ár. Hann hefur keypt Víking-
inn frá upphafi og því upplagt að birta
ntynd af honum i blaðinu.
miklu sveiflna í rekstri sjávarút-
vegs fór fyrirtækið fyrir tuttugu
árum út á þá braut. að setja saman
djúpdælubúnað fyrir hitaveitu-
borholur. Sjálfar dælurnar og raf-
mótorinn er flutt inn en fyrirtækið
smíðar allan tengibúnað á milli. 55
slíkar dælur eru nú í notkun, víða
um land, flestar 100—150 metrar,
en sú dýpsta er 250 metrar, hjá
Hitaveitu Akureyrar.
Stærsta vindan á sýningunni var
15 tonna splittvinda. Verið er að
byrja að nota millumþrýsting sem
gerir vinduna hljóðlátari og end-
ingarbetri.
Vélaverkstæði Sigurðar hefur
umboð fyrir alhliða vökvabúnað í
háþrýstikerfi, þ. á m. vindukerfi,
hæggenga, kraftmikla vökvamót-
ora, talíur og krana, skrúfudælur
fyrir lágþrýst spilkerfi, dælingu á
loðnu o.þ.h. auk ýmissa hluta fyrir
hitaveitur.
Fyrirtækið er að Arnarvogi í
Garðabæ, sími 52850 og 52661.
15