Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1984, Side 12
... / sömu lögum er
kveöiö á um, aö viö
Vitastofnun skuli
starfa skipstjórnar-
læröurmaöur,
ráöinn aö fenginni
umsögn Vita-
nefndar. Þessi
maöurhefur ekki
enn fengist ráöinn..
12 Víkingur
Segjum okkur úr
ef ekki verður ráðinn siglingafróður maður að
Vitastof nun, segir Höskuldur Skarphéðinsson
Höskuldur Skarphéöinsson, skipherra og nýkjörinnformaðurSkipstjórafélags ís-
lands, er mættur til viðtals um málefni sem hafa verið honum hugstæð lengi, en
það eru vitamál á íslandi.
Höskuldur hóf störf hjá Landhelgisgæslunni 1. september 1958, eöa sama dag
og landhelgin var færð út í 12 mílur. Hann hefur oft stjórnaö vitaskipinu Árvakri og
unnið við vitana á öðrum skipum Gæslunnar, svo hann er þaulkunnugur ástandi
vitamálanna.
Tilefni viðtalsins er það að
fulltrúar FFSÍ i vitanefnd, þeir
Ásgrimur Björnsson og Hösk-
uldur, varamaður Ásgrims,
hafa tilkynnt úrsögn sina úr
nefndinni ef ekki verði farið að
lögum og skipstjórnarlærður
maður ráðinn að Vitamála-
stofnuninni. Þessi ákvörðun
þeirra félaga er i samræmi viö
samþykkt síðasta FFSÍ þings.
Við biðjum Höskuld að
greina frá forsögu málsins.
— Vitanefndinni varkomið á
fót eftir setningu nýrra vita-
laga, sem gengu i gildi 1981.
Nefndin á að vera stefnu-
markandi i fjármálum og
fjárfestingu í vitamálum og þvi
öryggiskerfi sem heyrir undir
Vitamál. I sömu lögum er
kveðið á um, að við Vitastofn-
un skuli starfa skipstjórnar-
lærður maður, ráðinn að feng-
inni umsögn Vitanefndar.
Þessi maður hefur ekki enn
fengist ráðinn, þrátt fyrir
margitrekaða beiðni FFSÍ og
Sjómannasambandsins til
samgönguráðuneytisins og
fleiri aðila.
Þessi maöur á m.a. að sjá
um reglulegt eftirlit með öllum
lands- og hafnarvitum, gera
eða láta gera athuganir á Ijós-
einkennum og Ijóshornum vit-
anna og sjá um aö þau séu i
lagi. Hann á einnig að vera
tengiliður milli sjófarenda og
stofnunarinnar, en slíkt sam-
band lagðist að mestu niöur
Höskuldur um borð í varðskipi fyrir nokkrum árum.