Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1984, Síða 21
Þorskkóngar...
Þorskur meö vansköpun á skolti; neöri kjálki allt of stuttur og
bæklaöur aö auki. Að ofan er eölilega skapaöur þorskur. (Ljós-
mynd: Guöm. Svavar Jónsson, Hafrannsóknastofnun).
aöeins vart í þessu eina togi
hjá áðurnefndum bát. Að
sögn var hér um að ræða
frekar smáan þorsk (50 sm)
sem gæti hafa verið á 4. ald-
ursári. Þá hafa sjómenn tjáð
mér að ekki langt frá þessum
slóðum, þ.e. i Garösjónum, sé
töluvert algengt að fá öfug-
ugga sem þessa.
Orsakir
vanskapnaöar
Komum þá að hinni brenn-
andi spurningu hvað orsaki
hin sjúklegu einkenni sem
hér hefur verið um rætt. Ýmis
vanskapnaður, missmiði eða
lýti eru eðlilega vel þekkt hjá
fiskum sem öðrum lífverum.
Hér verður þó aðeins fjallað
um alvarlega vansköpun, þ.e.
þegar beinagrindin sjálf er úr
lagi gengin. Undir orðinu
vanskapnaður skiljum við
beinlínis það að lifveran hafi
ekki komiö rétt sköpuð í
heiminn. Þessu er einnig
þannig varið hjá fiskum að
oftast má rekja missmíöi á
beinagrind beint aftur til egg-
eða fósturskeiðs. Slíkir gallar
geta þó komið fram síðar á
ævinni en slikt er miklu sjald-
gæfara heldur en hitt. Vitað er
að bæði óeðlilegir umhverfis-
þættir, svo og sjúkdómar geta
orsakað missmið á beina-
grind og þar með fylgjandi út-
litsgalla. Það síðarnefnda á
miklu oftar við um ferskvatns-
og eldisfiska, en sjúkdómar
þeirra og önnur mein eru
skiljanlega miklu betur rann-
sakaðir heldur en krankleikar
sjávarfiska. Vansköpun á
stirtlu mjög áþekk þvi sem
sést hjá ýmsum þorskfiskum
og fleiri sjávarfiskum, er al-
geng hjá eldisfiskum svo sem
regnbogasilungi og mun
framkölluö af einfrumungum
sem nefnast gródýr. Þá eru
svonefndir fiskberklar sem
orsakast af bakterium al-
gengir hjá fiskum í vatnabúr-
um, en þeir geta m.a. leitt til
skemmda og missmíða á
hryggsúlu og höfuðbeinum.
Öfuguggar ísjó
Minna virðist hins vegar vit-
aö i smáatriöum um orsakir
sliks vanskapnaðar hjá sjáv-
arfiskum, en talið aö i flestum
tilfellum sé við óeölilega um-
hverfisþætti að sakast enda
eru eitur- og skortsjúkdómar
með sömu afleiðingum vel
þekktir hjá vatna- og eldis-
fiskum.
Úti í sjálfri náttúrunni svo
sem i sjónum geta umhverfis-
þættir oröið óeðlilegir á marg-
an hátt. Talið er að næringar-
skortur og þá um leið vöntun
á D-vitamini geti leitt til mis-
smiða sem þeirra er hér um
ræðir. Hitastig og selta geta
verið of lág eða súrefnis-
magnið i sjónum of litið svo
að dæmi séu nefnd. Þannig er
staðfest að innarlega í
Eystrasalti er margskonar
vanskapnaöur á fiski miklu
algengari en utar i sama hafi
og er lágu seltustigi um
kennt.
Nýjasti orsakavaldurinn er
svo mengun. Ýmis kemisk
efni, þungmálmar eöa annaö
sem lendir i sjónum, geta átt
hér hlut að máli. Þýskir vís-
indamenn hafa tekið eftir og
athugað sifellt aukin tilfelli af
sjúklegum vanskapnaði hjá
... Vitað er að bæði
óeðlilegir umhverfis-
þættir, svo og sjúk-
dómar geta orsakað
missmíð á beina-
grindog þarmeð
fylgjandi útlitsgalla...
... Hitastig og selta
geta verið oflág eða
súrefnismagnið í
sjónum oflítið svo
dæmi séu nefnd...
Víkingur 21