Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1984, Page 42
Hjálmar
Guómundsson
Hjálmar
Guömundsson
er vélstjóri á
Herjólfi og vara-
formaöur
Vélstjórafélags
Vestmannaeyja.
42 Víkingur
Staða
Staöa vélstjóranáms í dag
er all undarleg fyrir margra
hluta sakir, einkum og sér í
lagi gagnvart bátaflotanum.
Eins og staðan er i dag, þarf
sá sem fer í Vélskólann aö
vera eitt og hálft skólaár til aö
afla sér minnstu réttinda þ.e. I.
stig, en þurfti áöur eitt skólaár,
eöa einn vetur.
Aö visu geta menn öðlast
500hö. réttindi eftir eitt skóla-
ár (tvær annir) en eru þá á
vissan hátt búnir aö loka sig af
í námi gagnvart því ef aö þeir
vildu svo síöar meir halda
áfram námi.
Þegar svona er komið virð-
ist þeim sifellt fara fækkandi
sem fara i Vélskólann meö
þaö i huga aö stunda sin störf
til sjós og þá kannski fyrst og
fremst á bátaflotanum, enda
er nú svo komiö aö bátaflotinn
er aö lang stærstum hluta til
mannaður meö undanþágu-
mönnum. Ég vil meina aö or-
sök þess sé sú, hve langur
tími fer i það aö afla sér rétt-
inda og eins hins hve störf
sjómannsins eru lítils metin
launalega séö. Eins og áöur
kemur fram vil ég meina aö
þessi langi timi sem fer í aö
afla sér réttinda, vegi þungt i
þessari þróun og eins hitt aö
skólinn viröist vera aö missa
sjónar af þeim sem mennta
sig til starfa til sjós og þá
einkum á bátaflotanum, en
hugsi meira um þá sem koma í
skólann til aö afla sér mennt-
unar til starfa i landi, og eins
um þá sem nota Vélskólann
sem millinám i tækninámi.
Viö skólann er starfandi
skólanefnd og i þessu efni
finnst mér hún hafa brugöist
og kannski ekki síst fulltrúar
Vélstjórafélagsins og Fiskifé-
lagsins í nefndinni, því mér vit-
anlega hafa þeir ekki beðið
um stuöning frá starfandi
vélstjórafélögum til aö
stemma stigu viö þvi sem nú
er oröið, aö menn fái ekki rétt-
r
vélstjóranár
indi fyrr en eftir þetta langan
tima í námi. Nú i dag þarf maö-
ur sem lýkur námi viö Vélskól-
ann aö sitja i sex vetur og fær
engin réttindi fyrr en eftir eitt
og hálft ár, sem eru 500 hest-
afla réttindi og þá eftir tiltekinn
keyrslutimatil sjós.
Nib. viö þessa einu önn sem
maöur situr i námi til viöbótar
viö þaö sem maður þarf til að
öölast minnstu réttindi er
aðeins til aö opna leið til frek-
ara náms en gefur engin rétt-
indi til viðbótar.
Ég minnist þess aö fyrir full-
um tíu árum þegar ég var i
skólanum, voru farnar aö
heyrast raddir meöal kennara
og reyndar lika meöal nem-
enda um aö þaö þyrfti aö brúa
betur bilið milli Vélskólans og
Tækniskólans, og ef ekki vildi
betur, þá meö lengingu
námstimans. En aö lengja
skólann á þennan hátt sem nú
er raunin á oröin, tel ég mjög
miður. Þaö má vel vera rétt aö
skólinn þurfi aö vera sex vetur
til aö Ijúka námi til fulls, en mér
sýnist samt aö þaö heföi verið
hægt aö koma þvi þannig fyrir
aö menn fengju réttindi eftir
hvern vetur, því þaö er dýrt aö
vera í skóla í einn vetur, og ég
tala nú ekki um ef ekki næst
neinn árangur út úr þeirri setu,
hvaö þá einn og hálfan og sjá
svoengan árangur.
Breytingar á skólan-
um virka öfugt
Á sama tima og þessar
breytingar eru geröar á skól-
anum er veriö að tala um, aö
þaö þurfi aö breyta réttindum
vélstjóra til hækkunar til aö
svara kröfum tímans i sam-
bandi viö vélastæröir á báta-
flotanum og til aö reyna aö
stemma stigu viö siaukinni
ásókn i undanþágur til handa
vélstjórum á bátaflotanum.
Þessar breytingar á skólanum
hafa virkaö þveröfugt. Nú er
svo komiö aö fiskiskipastóll-
inn er aö mjög stórum hluta
mannaður undanþágumönn-
um, sem ráðuneytið hefurver-
iö mjög gjöfult á aö veita og
það sem meira er, þaö hefur
ekki farið aö lögum í því sam-
bandi og á ég þá viö, aö þaö
hefur veitt undanþágur þó svo
aö umsögn stéttarfélags á
viökomandi staö hafi ekki leg-
iö fyrir, eins og á aö gera
samkvæmt gildandi lögum. Ég
tel aö betra heföi verið að flýta
sér hægar meö breytingar á
skólanum og hafa þær sam-
hliða breytingum á réttindum
vélstjóra, sem mér skilst aó
séu aö líta dagsins Ijós um
þessar mundir. Eftir þvi sem
maður hefur fregnað um þær
lagabreytingar á réttindum
vélstjóra sem fyrirhugaðar
eru, er um töluverða fækkun á
vélstjórum og mönnum í vél að
ræöa þeim samfara. Þaö ætti
þá í næstu samningum aö
gefa þeim vélstjórum sem eftir
eru um borö i skipunum, tölu-
veröa launahækkun.
Þegar samningu nýrra laga
um atvinnuréttindi vélstjóra
var um þaö bil aö Ijúka heyrð-
ist auglýst aö þaö yröi haldiö
námskeiö fyrir undanþágu-
menn til aö afla sér réttinda aö
einhverju marki og ber aö
fagna því framtaki og skora ég
á sem flesta þá sem starfaö
hafa á undanþágu jafnvel til
margra ára aö drifa nú í því aö
afla sér réttinda nú strax, þvi
aö þegar ný lög taka gildi
verður örugglega þrengt veru-
lega um veitingu undanþága.
Sjálfsagt geta menn aflað
sér nánari upplýsinga um
þetta nám meö þvi að hringja í
Vélskólann i Reykjavik, og
eins veröur aö gera þær kröfur
til hans aö þessi námskeið
veröi haldin aö minnsta kosti
þar sem vélskólar eru fyrir og
helst víðar. Fyrir alla muni drif-
iö nú í þessu, áöur en þaö
verður um seinan.. Ef eitt-
hvaö er aö marka þaö sem