Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1984, Blaðsíða 53
Hpkkíí\/pl til
slógmeltuvinnslu NÝJUNGAR
Áhugi fyrir fullnýtingu aflans
eykst stööugt hér á landi og
einn liður i þvi eru tilraunir meö
slógmeltu, sem unnar hafa
verið af Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins. I tengslum við
þær tilraunir fær R.F. fjölda
tækja til prófunar, frá fyrirtækj-
um sem hug hafa á innflutn-
ingi þeirra. Hamar h.f. hefur nú
hafið innflutning á hakkavél-
um frá fyrirtækinu MONO, i
Bretlandi. Hakkvélarnar eru
kraftmiklar og sparneytnar og
er hægt að fá þær í ýmsum
stærðum, eða fyrir 1.5 til 400
KW spennu. Vél sú sem talin
er geta hentað best fyrir
sjávarútveginn og er nú til
skoðunar hjá R.F. vegur eitt
tonn og eyðir aöeins 7 kw, en
hægt er að nota 6—22 kw við
hana.
Vélin er búin tveim öxlum
með fjölda hnifa sem snúast
hver á móti öðrum á misjöfn-
um hraða. Við hana eru tveir
rafmótorar og er hún þrir
metraraö lengd.
Tilraunir hafa verið gerðar
með vélina um borö i Kamba-
röst SU 200 og reyndist hún
vel við slóg og gat tekið við um
90% af úrgangsfiski. Tilraunir
hafa verið gerðar með humar-
hausa og klær í vélinni, einnig
þorskhausa og skreið. Gæti
hökkunin þá hugsanlega verið
fyrsta vinnslustig á meiri úr-
^(REVKJAVI K t
Útbúum lyfjakistur fyrir skip
og báta.
Eigum ávallt tilbúin lyfja-
skrín fyrir vinnustaði, bif-
reiðar og heimili.
INGÓLFS APÓTEK
Hafnarstræti 5. Sími 29300
vinnslu. Hörpuskeljar hafa
einnig verið hakkaðar i vélinni.
Að sögn Sigurjóns Arason-
ar, deildarstjóra hjá R.F. getur
vélin nýst vel sem hráefnis-
kvörn fyrir framan fiskimjöls-
ORUGG HANDTÖK MEÐ(°2
MXTKJ 00 UX NOtKXJD
VINÍYL GLÓFUM
SJÓKLÆÐAGERÐIN HF
Skúlagötu 51 - Reykjavík - Sími 1-15-20
verksmiðjur og sem forhakka-
vél fyrir finni hökkun, í slóg-
meltuvinnslu. Einn helsta kost
vélarinnar sagði hann vera
sparneytnina.
• MEÐ HRJÚFU YFIRBORÐI
• ÖRUGG HANDFESTA
• FÖORAOIR MEÐ 100% ÝFOU
BðMULLAREFNI
• ROTVAROIR (SANITIZED)
• STERKIR EN MJUKIR
fSLENSK FRAMLEHDSLA
SEXTIU OG SEX
NORÐUR
VINYL GLÓFINN
Víkingur 53