Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1984, Blaðsíða 61
Utan úr hcimi
125 nýbyggingar, hjá
SANKO
Japanska útgerðarfélagið
SANKO á 125 skip í smíðum,
flest lausafarmskip (bulkcarri-
era). Vita menn vart um fleiri
nýbyggingar á einni hendi
samtimis.
millj. tonna d.w. að eigin
þunga (ekki tonnatölu).
Kínverjaraukaflot-
ann
Kínverjar auka nú stöðugt
flota sinn og eiga nú yfir 500
kaupskip, ca. 5 millj. tonn d.w.
Öldruð eru fiskiskip
danskra
56% af dönskum fiskiskipum,
eru nú 20 ára og eldri. Útgerð-
armenn telja sig ekki geta
endurnýjað fiskiskipaflotann,
án rikisaðstoöar.
Fjölskyldufélög, um
strandsiglingarnar
10 þúsund flutningabátar og
skip eru í strandferðum við
japönsku eyjarnar. 80% af
skipunum eru i fjölskyldueigu.
Samkeppni er mikil og heiftar-
lega barist um flutningana. Þvi
hefur japanska samgöngu-
málaráðuneytið ákveðið að
reyna að koma skipulagi á
flutningana.
Þóttskipið sé lítið
getur yfirhleöslan
orðið dýr
Ocean Traider frá Klakksvík,
Færeyjum, fékk 2300£ sekt í
Sharpnes i Englandi fyrir 10
sm yfirhleöslu. Þaö lætur
nærri að hver sm hafi kostað
10.000 kr. isl. Hætt er við að
rjóminn hafi verið fleyttur ofan
af „fraktinni" því reisan var
stutt, frá Leixoes i Portúgal og
skipið aðeins 700 tonn dw.
„Þægindafánarnir“ —
þar eru skipin
Undir fánum Líberiu, Panama,
Kýpur, Bermúda, og Bahama
eru skrásett skip 202.000.
000 tonn d.w. og eru það um
98% þeirra skipa, er sigla
undir svonefndum „þ-fána“.
Flestir aðhyllast nú fána
Panama.
Sláturhús skipanna
14. árið i röð hafa flest skip
verið sett í brotajárn á
Formósu árið 1983, eöa 3,21
Þýskir nota þæginda-
fána
40% af þýska kaupskipaflot-
anum sigla undir þægindafán-
um, og vex sá hluti stööugt.
Lítið fækkar í baujun-
um
1663 kaupskip liggja nú bund-
in i heiminum, vegna verk-
efnaskorts sl. áramót. Tonna-
tala þeirra er 79.760.000 tonn
d.w.
Bergesen spjarar sig
Meö 1350 milljónir n. kr. liggj-
andi sem eigiö fé i bönkunum,
stendur útgerðin traustum fót-
um. Siglingatekjur sl. árs voru
lika 1350 milljónir og af þeim
stóðu 675 millj. nkr. eftir hjá
útgerðinni þegar allur kostn-
aður var greiddur. Skipin eru
43, þar af lágu 11 allt áriö i
baujunum vegna verkefna-
skorts, svo ætla má að gróð-
inn geti margfaldast fljótt ef
tankfraktin hækkar, en hún er
eins og allir vita i lágmarki.
1500 menn starfa hjá útgerð-
inni.
Örtvex flotinn, undir
hamri og sigð
Rússneski kaupskipaflotinn
er nú um 20 millj. tonn d.w. og
vex ört. Sl. ár flutti hann vörur
er námu 230 millj. tonnum að
þunga.
Singapore-fáni“
Yfir 1600 skip erlend, nota nú
þægindafána Singapore.
Seglin spara olíu, og
létta undir útgerðar-
kostnaði
„Tropical Marina" japanskt
seglskip með hjálparvél 6650
d.w. undir Panama fána, er nú i
jómfrúarferð i Suðaustur-Asiu
Seglin eru úr léttmálmi og
tölvustýrð. Sem sagt, nú er
enginn „segli gamli“ hafður
meö í förinni lengur. Þess má
geta að 1500 tonna tankskip
japanskt hefur haft seglútbún-
að til hjálpar um árabil og á
stökum ferðum náð allt aö
50% oliusparnaöi. Eins og ég
hef áður minnst á i þessum
þáttum, þá hafa mörg af
„Ringkobing“ skipunum, 1660
tonn d.w., haft svokölluð
Genúa-segl og náð umtals-
veröum oliusparnaöi.
Siglingafloti Norð-
manna
Siglingafloti Norðmanna (er-
lendar siglingar) telur nú 784
skip 30.346.000 tonn dw.
Norsk skip undir þægindafán-
um eru 188 og þar við má
bæta 49 skipum er þeir eiga
meirihluta i. Samtals gera
þetta 1.021 skip. Brúttótekjur
af farmskipunu, gera 31.45
milljarða N.kr. Ágæt búbót
það.
1860 kafarar starfa í
Norðursjónum
1860 kafarar og aðstoðar-
menn vinna við köfun i sam-
bandi viö oliuvinnslu á norska
og breska landgrunninu.
Víkingur 61